Gott að vita um kortin
Hér finnur þú upplýsingar um notkun og valmöguleika kortanna okkar.
Hér finnur þú upplýsingar um notkun og valmöguleika kortanna okkar.
Hér finnur þú ýmsar upplýsingar um kortin ásamt kennslumyndböndum um appið okkar og virkni korta þar.
Hér finnur þú ýmsar gagnlegar upplýsingar um kortin okkar. Ef þú hefur frekari spurningar er þér velkomið að hafa samband við okkur í gegnum netspjallið
Þú getur breytt PIN númerinu í öllum hraðbönkunum okkar.
Af öryggisástæðum getur nýtt PIN númer ekki innihaldið að hluta til eða öllu leyti: kortanúmerið, gildistíma kortsins, kennitölu korthafa eða verið einvalt númer eins og 1234, 1111 o.s.frv.
Smelltu á kortið þitt í appinu til að sjá færslur kortsins. Smelltu á dreifingar og „Ný dreifing“, þar getur þú dreift kortareikningnum eða stimplað inn upphæð að eigin vali.
Leiðbeiningar um innborgun á kreditkort í netbanka og appi.
Það er einfalt að virkja kortin frá okkur, bæði í netbanka og í appi. Hérna getur þú nálgast leiðbeiningar um virkjun korta.
Einstaklingar geta valið um þrenn kortatímabil vegna kreditkorta:
Fyrsta kortatímabilið | Annað kortatímabilið | Þriðja kortatímabilið |
Frá 27. hvers mánaðar til og með 26. næsta mánaðar | Frá 1. hvers mánaðar til og með 31. sama mánaðar | Frá 12. hvers mánaðar til og með 11. næsta mánaðar |
Gjalddaginn er 2. hvers mánaðar, nema þegar þann dag ber upp á helgidag. Þá er gjalddaginn næsta virka dag á eftir. | Gjalddaginn er 3. næsta mánaðar eftir að kortatímabili lýkur, nema þegar þann dag ber upp á helgidag. Þá er gjalddaginn næsta virka dag á eftir. | Gjalddaginn er 17. sama mánaðar og kortatímabili lýkur, nema þegar þann dag ber upp á helgidag. Þá er gjalddaginn næsta virka dag á eftir. |
Þetta kortatímabil er eingöngu í boði sem pappírslaus viðskipti og fær korthafi reikning sinn birtan í rafrænum skjölum netbanka. |
Kortatímabilið er alltaf það sama og er því aldrei breytilegt.
Boðgreiðslur eru útgjöld sem skuldfærð eru á kreditkortið þitt að þinni beiðni. Þú getur sett flest regluleg útgjöld í boðgreiðslur að undanskyldum lánum. Þetta á við um útgjöld eins og orkureikninga, símreikninga, fasteignagjöld, leikskólagjöld, áskriftir og fleira.
Til þess að setja föst útgjöld í boðgreiðslur á kreditkort þarftu að hafa beint samband við viðkomandi fyrirtæki, sveitarfélag eða stofnun.
Greiða með Android
Þú getur tengt kort við síma, Fitbit og Garmin snjallúr.
Greiða með iOS
Þú getur tengt kort við Apple Wallet og greitt með Apple símum, úrum og spjaldtölvum.
Hefur þú kynnt þér þær tryggingar sem fylgja með kortinu þínu?
Kreditkortum frá Íslandsbanka fylgja ýmsar tryggingar sem geta komið sér vel í ferðalögum. Ferðatryggingar, bílaleigutryggingar eða neyðarþjónusta um allan heim gæti leynst í veskinu þínu.
Þú getur allan sólahringinn, alla daga ársins, fengið aðstoð ef upp kemur vandamál með kortið. Hvort sem þú týnir kortinu, kannast ekki við færslu, eða ef þú slasast eða veikist alvarlega erlendis.
Hvort sem viðskipti eru í verslun eða á netinu þarf alltaf að huga að öruggum viðskiptum með greiðslukortum.
Það gæti verið færsla á kortinu þínu sem þú kannast ekki við eða vara sem þú ert búinn að kaupa en hefur ekki skilað sér. Kortaviðskipti er örugg leið til viðskipta en einstaka sinnum getur eitthvað komið upp á og erum við þá þér innan handar. Við bendum þér á að byrja á því að reyna að leysa málið með seljanda/þjónustuaðila og ef það gengur ekki aðstoðum við þig með endurkröfuferlið.
Athugið að endurkröfuferlið getur tekið allt að þrjá til fjóra mánuði.