Snertilausar greiðslur

Þú getur skráð öll kortin þín í símann eða úrið og borgað snertilaust á fljótlegan og einfaldan hátt. Það er engin hámarksupphæð við þessar greiðslur.

Borgaðu með símanum eða úrinu


Ef þú ert með snjallsíma eða snjallúr getur þú tengt kortin þín við tækið og greitt snertilaust á fljótlegan og einfaldan hátt.

Google Payᵀᴹ

Þú getur tengt kort við Google Wallet og greitt með Android símum og úrum. Ekki er hámark á upphæð.

    Skoða Google Pay

    Apple Payᵀᴹ

    Þú getur tengt kort við Apple Wallet og greitt með Apple símum, úrum og spjaldtölvum. Ekki er hámark á upphæð.

      Skoða Apple Pay

      Snjallúr

      Þú getur tengt kort við Apple, Fitbit, Garmin og Wear OS snjallúr og greitt snertilaust. Ekki er hámark á upphæð

        Skoða snjallúr

        Greiða snertilaust með korti


        • Hver snertilaus greiðsla á korti getur að hámarki verið 7.500 kr.
        • Samanlögð upphæð snertilausra greiðslna á korti getur ekki verið hærri en 15.000 kr. á milli þess sem kortið er notað á hefðbundinn hátt og greiðsla er staðfest með PIN númeri
        • Þegar hámarksupphæð snertilausra greiðslna er náð þarf að staðfesta greiðslu með PIN númeri til þess að hægt sé að hefja snertilausar greiðslur á ný

        Stafrænar lausnir


        Nýttu þér stafrænar lausnir Íslandsbanka til að sinna öllum helstu bankaviðskiptum, hvar og hvenær sem er.

        Ör­yggi greiðslna með snjall­tækj­um


        Greiðslur með símanum, úri eða öðrum snjalltækjum eru ávallt tengdar undirliggjandi greiðslukorti. Öll greiðslukort Íslandsbanka eru gefin út með heimild Mastercard. Snertilausar greiðslur með snjalltækjum eru einnig þróaðar í samvinnu við Mastercard og fylgja öllum þeim öryggiskröfum sem fyrirtækið setur. 

        Þegar kort er virkjað fyrir snertilausar greiðslur verður til sýndarnúmer (token) sem snjalltækið notar. Hið eiginlega kortanúmer er því ekki notað þegar greitt er, sem eykur öryggi snertilausra greiðslna.

        Til þess að geta notað síma sem greiðsluleið er nauðsynlegt að notendur noti viðeigandi öryggisstillingar til þess að aflæsa símtækinu, t.d. PIN númer eða fingrafar. Þegar um er að ræða greiðsluleið frá öðrum aðilum, t.d. Garmin og Fitbit er nauðsynlegt að fylgja þeim öryggisþáttum við sem krafist er við auðkenningu og staðfestingu á greiðslu. 

        Þar sem auðkenningarleið snjalltækis er nú nýtt sem staðfesting á greiðslu er mikilvægt að notendur gæti vel að sú auðkenningarleið sé ekki aðgengileg öðrum en notandanum sjálfum.