Góð ráð fyrir umsóknarferlið
Þegar þú skrifar ferilskrá og ert að undirbúa þig fyrir atvinnuviðtal eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga.

Hvernig á að sækja um:
- Finndu rétta starfið: Farðu inn á ráðningarsíðu Íslandsbanka og skoðaðu laus störf.
- Lestu starfslýsingu vandlega: Vertu viss um að þín reynsla og áhugi passi við starfslýsingu og hæfnikröfur.
- Fylltu út rafræna umsókn: Fylgdu skrefunum og passaðu að upplýsingar séu réttar. Lestu yfir áður en þú sendir og athugaðu málfar, stafsetningu og nákvæmni upplýsinga.
- Sendu umsóknina: Staðfestu að umsókn hafi skilað sér - þú færð póst eða skilaboð með staðfestingu þegar hún hefur borist.
Ferilskrá:
Ferilskráin er lykilskjal sem gefur heildarmynd af þér, menntun, reynslu og hæfni. Vel uppsett og skipulögð ferilskrá eykur líkur á að þú fáir viðtal.
- Persónuupplýsingar: Nafn, símanúmer, netfang og heimilisfang ef við á.
- Stutt kynning: 2-3 línur um þig og þína styrkleika.
- Menntun: Röðuð frá nýjustu til elstu. Nefndu skóla, nám, ár og prófgráður.
- Starfsreynsla: Listaðu fyrri störf, hlutverk og helstu verkefni. Notaðu dæmi til að sýna árangur.
- Hæfni og kunnátta: Tungumál, tölvukunnátta, þjónusta eða annað sem nýtist starfi.
- Áhugamál og félagsstarf: Sýnir frumkvæði og breidd.
- Samræmi og skipulag: Notaðu einfaldan og skýran stíl – forðastu óþarfa flækjur.
Kynningarbréf:
- Reynsla og hæfni: Segðu frá þeirri hæfni og reynslu sem mun nýtast þér í starfinu.
- Persónulegir eiginleikar: Segðu aðeins frá sjálfum þér - bæði í vinnu og utan vinnu.
- Stutt og hnitmiðað: Sjaldan lengra en ein síða. Skýr uppbygging: inngangur, meginmál, niðurstaða.
- Vandað málfar: Forðastu stafsetningar- og málfræðivillur – lestu yfir eða fáðu einhvern til að lesa yfir.
Undirbúningur fyrir atvinnuviðtal:
- Kynntu þér Íslandsbanka: Skoðaðu vefinn og þekktu gildi, stefnu og þjónustu bankans.
- Æfðu svör við algengum spurningum: T.d. segðu frá sjálfri/sjálfum/sjálfu þér, hvers vegna viltu starfa hjá Íslandsbanka? Hvaða styrkleika hefur þú og hvernig nýtast þeir í starfinu? Geturðu nefnt dæmi þar sem þú leystir erfið verkefni eða sýndir frumkvæði?
- Komdu með spurningar til baka: Spyrðu um menningu, þjálfun, vinnutíma eða annað sem skiptir þig máli.
- Komdu vel fyrir: Veldu snyrtilegan klæðnað, vertu stundvís og sýndu virðingu.
- Vertu þú sjálf(ur/t): Heiðarleiki og jákvæðni vekja traust.
Önnur mikilvæg atriði:
- Tímamörk: Skilaðu umsókn fyrir tiltekinn tíma.
- Eftirfylgni: Ef þú færð ekki svar til baka innan tilgreinds tíma má senda áminningarpóst.
- Framkoma: Kurteisi og góð samskiptahæfni skipta máli í öllum skrefum ferlisins.
- Þrautseigja: Ef þú færð ekki starfið að þessu sinni, lærðu af ferlinu og reyndu aftur – þrautseigja skilar árangri.