Debetkort fyrirtækja

Sæktu um debetkort hér á vefnum á einfaldan og öruggan hátt.

Með debetkorti getur þú greitt með bæði korti og snjalltækjum út um allan heim.

Nánar um debetkortin okkar

  • Kortið er gefið út á kennitölu korthafa tengt reikningi fyrirtækisins

  • Kortin eru öll með snertilausa virkni

  • Hægt er að nota kortin við kaup á vöru og þjónustu á staðnum eða á netinu

  • Þú virkjar debetkortið í Íslandsbankaappinu, en þar ert þú með öll þín kort og kortaaðgerðir á einum stað

  • Umsækjandi þarf að vera skráður sem tengdur aðili samkvæmt Fyrirtækjaskrá RSK til að geta sótt um f.h. félags.

  • Framkvæmdastjóri eða prókúruhafi félagsins þarf að undirrita umsókn um bankareikninga

Virkja kort


Þegar þú færð nýja kortið þitt í hendurnar virkjar þú það í gegnum appið. Með fyrstu notkun örgjörva og PIN númers samþykkir þú skilmála kortsins.

Árgjald
990 kr.
Snertilaus greiðsluviðmið á snjalltæki
Ekkert hámark
Snertilaus greiðsluviðmið
7.500 kr.
Samanlögð upphæð snertilausra greiðslna á korti
15.000 kr.

Úttektarheimild


Innlend hraðbankaheimild: 300.000 kr. á sólarhring

Erlend hraðbankaheimild: 300.000 kr. á sólarhring

Staðsetningar hraðbanka Íslandsbanka