- Gott er að byrja á því að athuga hvort vegabréfið sé enn í gildi og skoða hvaða fríðindi og tryggingar fylgja kortinu þínu. Flestum kreditkortum fylgir forfallatrygging sem getur komið sér vel ef eitthvað kemur upp á. Aðrar tryggingar sem geta nýst á ferðalaginu eru til dæmis bílaleigutryggingar og aðgangur að neyðarþjónustu um allan. Upplýsingar um hvaða tryggingar fylgja kortinu þínu getur þú fundið á kortasíðunni okkar. Þau sem eru í Vildarþjónustunni okkar fá síðan betra verð, demantskjör, á tryggingum hjá VÍS en það er alltaf gott að hafa vaðið fyrir neðan sig.
- Gott er að kanna stöðuna á Vildarpunktum Icelandair áður en gengið er frá kaupum á flugi, hóteli eða bílaleigubíl. flug- eða hótelpöntun. Það getur lækkað ferðakostnaðinn og gert það að verkum að þú færð meira út úr sumarfríinu þínu. Það er oft skemmtilegra að eyða punktum heldur en peningum.
- Þegar þú ert á ferðalagi skiptir öryggi máli. Ef þú týnir kortinu þínu þá getur þú með einföldum hætti fryst kortið þitt í Íslandsbankaappinu og ef þú manst skyndilega í hvaða tösku kortið er þá er ekkert mál að virkja kortið aftur. Þá er gott að hafa það fyrir venju að samþykkja engar innskráningar eða greiðslur með rafrænum skilríkjum eða Auðkennisappinu nema þú kannist við þær. Ef vandamál koma upp sem varða svik eða kort þá eru ráðgjafar neyðarþjónustunnar við símann allan sólarhringinn í síma 440 4000.
- Þurfir þú að taka pening út í hraðbanka þá er hagstæðara að taka pening út af debetkortum frekar en af kreditkortum og þegar greitt er í posa erlendis er yfirleitt ódýrara að velja gjaldmiðil viðkomandi lands fremur en íslenska upphæð.
- Taktu Fríðu með í fríið. Fríða veitir fjölbreytt tilboð af allskonar afþreyingu, vörum og þjónustu. Hvort sem það er bíóferð á helmingsverði á rigningarlegum mánudegi, ódýrara bakkelsi í Köben, flúðasiglingar eða góður sundsprettur í lauginni, þá ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi. Stundum eru það einmitt litlu hlutirnir sem gera fríið aðeins betra. Þú finnur okkar bestu Fríðu í appinu.
Góð ráð fyrir sumarfríið
Sumarið er tíminn til að slaka á, njóta og skapa góðar minningar. Sé planið að ferðast í sumar eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga svo að ferðalagið gangi snuðrulaust fyrir sig.
