Vildarþjónusta

Má bjóða þér betri vexti á sparnaðinn, afslátt af kreditkorti, sérsniðin Fríðutilboð, betri kjör á tryggingum hjá VÍS eða afslátt af vöxtum Fljótandi húsnæðislána? Vertu með í Vildarþjónustunni og njóttu meiri fríðinda.   

Hvernig virkar Vildar­þjónustan?  


  • Við viljum að þú fáir meira út úr því að vera með fjármálin þín á einum stað. Í Vildarþjónustunni færðu stig fyrir vörur og þjónustur. Því fleiri stig, því hærra kemstu og færð um leið enn meiri fríðindi.
  • Vildarþjónustan er aðgengileg í Íslandsbankaappinu. Þú opnar appið og fylgir einföldum leiðbeiningum til að vera með. Þetta tekur enga stund. 
  • Í appinu færðu góða yfirsýn yfir fjármálin, fríðindi þín og hvernig þú safnar stigum. 

Vildarþjónusta

Náðu þínum eigin toppi 

Skrefin í Vildarþjónustunni eru kennd við íslensk fjöll og heita Klettur, Fjall, Drangi, Jökull og Tindur. Ferðin upp fjallgarðinn í Vildarþjónustunni er bæði skemmtileg og gefandi. Hér getur þú skoðað hvaða fríðindi standa þér til boða á hverju fjalli og hversu mörg stig þú þarft til að ná þínum eigin toppi. 

Hvernig færðu stig?

Kortasaga

1-10 stig fyrir kortasögu

25 stiga vörur

  • Húsnæðislán
  • Fyrirtækjaeigandi
  • Heimilistrygging hjá VÍS

Sparnaður

  • 5 stig fyrir 5 milljónir króna
  • 10 stig fyrir 10 milljónir króna
  • 25 stig fyrir 25 milljónir króna

Kortavelta

  • 10 stig fyrir 250 þúsund krónur
  • 15 stig fyrir 500 þúsund krónur

10 stiga vörur

  • Bílalán
  • Virk séreign

5 stiga vörur

  • Reglulegur sparnaður
  • Áskrift í sjóðum

Vildarsparnaður 


Vildarsparnaður er nýr sparnaðarreikningur með okkar bestu vöxtum og er hann í boði fyrir þau sem eru í Vildarþjónustunni.

  • Óbundinn sparnaðarreikningur 
  • Vextir greiddir mánaðarlega.  

Þín kjör ráðast af stöðu þinni í  Vildarþjónustunni hverju sinni. Því hærra sem þú kemst í þjónustunni því betri vexti færðu. 

Vildarþjónustan og VÍS 

Ef þú ert með heimilistryggingu hjá VÍS færðu 25 stig í Vildarþjónustunni, sem gæti hjálpað þér að komast á næsta topp. Þú heldur demantskjörum á tryggingum hjá VÍS svo lengi sem þú ert með virkt debet- eða kreditkort og heimilistryggingu hjá VÍS.   

    Nánar um samstarfið

    Afsláttur af vöxtum Fljótandi húsnæðislána 

    Tryggðu þér 0,10% afslátt af vöxtum Fljótandi húsnæðislána með því að vera í Vildarþjónustu Íslandsbanka. Afslátturinn gildir í eitt ár og er í boði á öllum skrefum þegar þú hefur samþykkt skilmála þjónustunnar og ert með virkt kort.

      Skráðu þig og þú gætir unnið 

      Öll sem skrá sig í Vildarþjónustuna fyrir 20. apríl eiga möguleika á að geta unnið vinning frá Laugarás Lagoon, Hótel Kerlingarfjöllum, 66 Norður, Everest eða Hótel Búðum.

      Spurt og svarað