Ferilskráin og starfsviðtal
Þegar þú skrifar ferilskrá og undirbýrð þig fyrir atvinnuviðtal eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga. Ferilskráin er oft fyrsta sýn vinnuveitanda á þig, svo hún þarf að vera skýr, hnitmiðuð og snyrtilega uppsett. Hún ætti að innihalda persónuupplýsingar, menntun, starfsreynslu og aðra hæfni sem nýtist í starfi. Í atvinnuviðtali er mikilvægt að mæta vel undirbúin/n, kynna sér fyrirtækið og vera stundvís. Lesa nánar.
Lestu launaseðilinn
Í hvert skipti sem þú færð útborgað færðu launaseðil. Það er mikilvægt að læra að lesa launaseðilinn og skilja hvert launin þín eru að fara. Launaseðilinn á meðal annars að sýna upplýsingar um vinnutíma, laun, orlof og frádrátt. Það er góð regla að temja sér að fara vel yfir launaseðilinn því stundum geta orðið mistök við útborgun launa. Ef einhver atriði launaseðilsins eru óskýr getur þú talað við þinn vinnuveitenda eða leitað ráða hjá þínu stéttarfélagi.
Séreignarsparnaður er launahækkun
Þú getur valið hvort þú ert með séreignarsparnað eða ekki. Þú sem launþegi getur valið að leggja allt að 4% af laununum þínum í séreign og vinnuveitandi leggur til allt að 2% mótframlag. Að vera með séreignarsparnað getur því þýtt 2% launahækkun. Við 60 ára aldur er þér svo frjálst að taka út séreignarsparnaðinn þinn en einnig eru ýmis sérúrræði í boði eins og að nota séreignarsparnaðinn við kaup á fyrstu fasteign. Meira um séreignarsparnað hér.
Svona greiðir þú skatt
Allir greiða skatt af sínum launum og þegar þú byrjar í nýrri vinnu þarftu að skila inn upplýsingum um nýtingu persónuafsláttar til þíns vinnuveitanda. Upplýsingarnar sækir þú vefsíðu Skattsins. Á launaseðlinum kallast þessi skattur staðgreiðsla og er ákveðið hlutfall af laununum þínum sem vinnuveitandi ber ábyrgð á að draga af laununum og greiða til Skattsins. Við útreikning á skattinum er tekið tillit til persónuafsláttar sem þú sem launþegi átt rétt á, í samræmi við nýtingaryfirlit sem þú skilaðir.
Svona greiðir þú í lífeyrissjóð
Meginreglan er sú að í hvert sinn sem þú færð útborgað fara 4% af laununum þínum til lífeyrissjóðsins. Vinnuveitandinn þinn sér um þetta fyrir þig auk þess sem hann greiðir mótframlag að lágmarki 11,5%. Með því að greiða í lífeyrissjóð safnar þú upp réttindum til að fá greiddan ellilífeyri þegar starfsævi líkur og til æviloka og einnig réttindum til örorkulífeyris ef þú verður óvinnufær áður en starfsævi lýkur. Um þetta gilda margskonar reglur sem eru mismunandi eftir lífeyrissjóðum og stéttarfélögum. Kynntu þér þetta vel og heyrðu í þínum lífeyrissjóði ef einhverjar spurningar vakna.
Þú átt rétt á orlofi eða orlofsgreiðslum
Öllum vinnuveitendum er skylt að greiða starfsfólki sínu orlof. Mismunandi er hvernig orlofsgreiðslum er háttað og því mikilvægt að þú kynnir þér vel hvernig það fyrirkomulag er á þínum vinnustað. Yfirleitt eru orlofslaun ákveðin prósenta af heildarlaunum sem ýmist eru greidd út í hverjum mánuði, lögð inn á orlofsreikning eða veitir þér rétt til að taka launað sumarfrí. Ef orlof er greitt inn á reikning er það greitt út 11. maí ár hvert. Hér getur þú lesið nánar um orlofsreikning.
Sparnaður - fyrir framtíðina
Mundu að því fyrr sem þú byrjar að spara, því betra. Það er gott að huga strax að sparnaði og leggja fyrir hluta af laununum þínum í hverjum mánuði. Allskonar sparnaðarreikningar eru í boði og einnig hægt að stilla sparnaðinn sjálfvirkt, þú munt varla taka eftir því en þakka þér seinna meir þegar þú átt til smá varasjóð.
Hverju viltu spara fyrir?
Er eitthvað sérstakt sem þú vilt safna þér fyrir? Settu þér markmið um hvað þú ætlar að leggja fyrir háa fjárhæð mánaðarlega. Mundu að margt smátt gerir eitt stórt. Hægt er að reikna út sparnaðinn í sparnaðarreiknivélinni okkar og sjá hversu langan tíma það tekur að safna ákveðinni upphæð.