67 ára og eldri
Þjónustuleið fyrir 67 ára og eldri þar sem þú færð fríðindi ásamt persónulegri og fljótlegri þjónustu.
Þjónustuleið fyrir 67 ára og eldri þar sem þú færð fríðindi ásamt persónulegri og fljótlegri þjónustu.
Þú getur líka bókað tíma hjá sérfræðingum okkar og fengið ráðgjöf í næsta útibúi á þeim tíma sem hentar þér.
Þú getur fengið úthlutaðan eigin tengilið innan bankans sem veitir persónulega þjónustu og aðstoð vegna bankaþjónustu. Upplýsingar um tengiliðinn birtast í Vildarþjónustunni í appinu. Einnig er hægt að hafa samband við okkur og óska eftir tengilið.
Njóttu eftirlaunaáranna enn betur og frelsis til að gera það sem þig langar til.
Með Brúarláni getur þú fest kaup á nýju húsnæði áður en þú selur núverandi eign. Það gefur þér svigrúm til að grípa tækifæri þegar það gefst og tryggja þér nýtt heimili án fyrirvara um sölu eldri eignar.
Fasteignalífeyrir er lán fyrir fólk sem er komið á lífeyrisaldur eða styttist í töku lífeyris og vill auka mánaðarlegar ráðstöfunartekjur sínar með því að taka lán með veði í fasteign sinni. Meðan á lánstímanum stendur þarf ekki að greiða af láninu og lántaki velur hversu háa fjárhæð hann dregur á lánið í hverjum mánuði.
Með því að nýta verðmæti fasteignar þinnar getur þú losað um fjármagn og skapað meira svigrúm fyrir það sem skiptir þig máli, á sama tíma og þú heldur áfram að búa á núverandi heimili.
Þar sem ekki er greitt af láninu þá hækkar höfuðstóll lánsins á lánstímanum
Við lok lánstímans er lánið greitt upp eða endurfjármagnað
Lánið er óverðtryggt og veitt á fljótandi húsnæðislánavöxtum sem samanstanda af stýrivöxtum að viðbættu 2,10% vaxtaálagi
Lánað er á 1. veðrétt fasteignarinnar
Lánstími er að hámarki til 10 ára
Þú getur líka bókað tíma hjá sérfræðingum okkar og fengið ráðgjöf í næsta útibúi á þeim tíma sem hentar þér.