Fasteignalífeyrir
Fasteignalífeyrir er fyrir viðskiptavini sem eru komir á lífeyrisaldur og vilja auka ráðstöfunartekjur sínar.
Fasteignalífeyrir er fyrir viðskiptavini sem eru komir á lífeyrisaldur og vilja auka ráðstöfunartekjur sínar.
Fasteignalífeyrir er lán fyrir fólk sem er komið á lífeyrisaldur eða styttist í töku lífeyris og vill auka mánaðarlegar ráðstöfunartekjur sínar með því að taka lán með veði í fasteign sinni. Meðan á lánstímanum stendur þarf ekki að greiða af láninu og lántaki velur hversu háa fjárhæð hann dregur á lánið í hverjum mánuði.
Með því að nýta verðmæti fasteignar þinnar getur þú losað um fjármagn og skapað meira svigrúm fyrir það sem skiptir þig máli, á sama tíma og þú heldur áfram að búa á núverandi heimili.
Þú getur líka bókað tíma hjá sérfræðingum okkar og fengið ráðgjöf í næsta útibúi á þeim tíma sem hentar þér.