Ísland hentar gagnaverum vel. Hér fæst endurnýjanleg raforka og svalt loftslag dregur úr þeirri orkunotkun sem þarf til að kæla búnaðinn. Að sögn rekstraraðila gagnavera hér á landi er orkunýtni þeirra með því besta sem gerist í heiminum. Þar sem ódýrara er að flytja gögn en orku er hagkvæmt að vinna gögnin nálægt orkugjöfunum og selja þjónustuna úr landi með rafrænum gagnaflutningi. Orkan er íslensk, en búnaðurinn sem breytir henni í útflutning er fluttur inn. Það er því innflutningur búnaðarins sem setur fyrst svip sinn á hagtölurnar.
Stórar tölur í litlu hagkerfi
Myndin hér að neðan sýnir samhengið. Búnaðurinn kemur til landsins og tekjurnar af honum byrja að skila sér í útflutningi nokkrum fjórðungum síðar, þegar hann er kominn í notkun. Í fyrri innflutningskúfnum náði innflutningurinn hámarki á fyrri hluta síðasta árs og á þriðja fjórðungi tóku útflutningstekjurnar stökk. Í mars hófst annar kúfur og næstu tölur munu leiða í ljós hvort tekjurnar fylgja honum eftir á sama hátt. Innflutningurinn litar þannig fjárfestingu og vöruskiptatölur strax, en áhrif á útflutning og hagvöxt birtast síðar.

