Nýjar stoðir taka við keflinu í útflutningsvexti

Erlendum ferðamönnum fækkaði lítillega á fyrstu níu mánuðum ársins en gistinóttum hefur fjölgað og kortavelta erlendra korta aukist það sem af er ári. Nýjar útflutningsstoðir ættu að styðja við meiri útflutningsvöxt næstu ár.


Nýjustu tölur um ferðamenn, gistinætur og vöruútflutning gefa nokkuð skýra mynd af stöðu útflutningshagkerfisins um þessar mundir. Ferðaþjónustan, sem hefur verið langmikilvægasta útflutningsgrein landsins síðastliðinn áratug, virðist nú komin á þroskaðra stig þar sem vöxtur er takmarkaðri en áður. Á sama tíma sjást merki um aukinn þrótt í öðrum útflutningsgreinum, meðal annars fiskeldi og hugverkaiðnaði. Þannig virðist útflutningsgrunnur hagkerfisins verða fjölbreyttari en áður, sem dregur úr þeirri áhættu sem fylgir mikilli samþjöppun í einstökum greinum.

Ferðamönnum fækkar lítillega frá fyrra ári

Samkvæmt nýjustu tölum Ferðamálastofu fóru um 228 þúsund erlendir ferðamenn frá landinu um Keflavíkurflugvöll í september. Jafngildir það 1,7% fjölgun frá sama mánuði í fyrra og hefur þróunin milli ára ekki verið hagfelldari frá því í maímánuði.

Meðal þjóðerna ferðamanna voru Bandaríkjamenn lang fjölmennastir líkt og fyrri daginn þrátt fyrir lítilsháttar fækkun milli ára og var tæpur þriðjungur brottfara um Keflavíkurflugvöll þarlendir ferðamenn. Kínverjar voru næstfjölmennastir (8% af heildarfjölda) og fjölgaði þeim um nærri þriðjung milli ára. Þar á eftir komu Kanadamenn (6,5%) sem fjölgaði um 2/3 hluta milli ára, Þjóðverjar (6.3%) og Bretar (5,5%) voru í fimmta sætinu hvað fjölda varðar.

Athygli vekur að breytingarnar eru nokkuð mismunandi eftir upprunalöndum ferðamanna. Bandaríkjamenn halda áfram að vera fjölmennasti hópurinn og vegur þar sterk staða bandarísks vinnumarkaðar og kaupmáttar þungt. Þá fjölgar ferðafólki frá Kína og Kanada hröðum skrefum. Á móti virðast ferðamenn frá sumum Evrópulöndum hafa sýnt minni vöxt eða jafnvel samdrátt. Það endurspeglar að einhverju leyti hægari hagvöxt í Evrópu undanfarin misseri og áfram háa verðlagningu Íslands sem áfangastaðar.

Á fyrstu þremur fjórðungum ársins fækkaði erlendum farþegum um Keflavíkurflugvöll um 0,8% milli ára. Er það í samræmi við væntingar okkar í nýlega birtri þjóðhagsspá þar sem spáð var 0,6% fækkun í ár frá síðasta ári.

Gistinætur halda velli á háönn

Þrátt fyrir lítilsháttar fækkun erlendra farþega um Keflavíkurvöll háannarmánuðina júní-ágúst benda aðrir hagvísar til þess að heldur meira hafi komið í kassann hjá ferðaþjónustunni á tímabilinu heldur en í fyrra. Þannig fjölgaði gistinóttum á skráðum gististöðum um tæp 3% á þessu tímabili frá sama tíma á síðasta ári samkvæmt gögnum Hagstofunnar og velta erlendra greiðslukorta jókst um ríflega 7% milli ára reiknað á föstu gengi krónu. Hver ferðamaður virðist því að jafnaði hafa dvalið aðeins lengur hér á landi og eytt nokkuð meiru í Íslandsferð sinni þetta sumarið en á sama tíma í fyrra.

Jafnframt hefur verið nokkur breyting á samsetningu gistinátta. Hótelgeirinn virðist almennt halda stöðu sinni betur en hluti annarrar gististarfsemi. Þá benda tölurnar til þess að vöxturinn sé nú fremur tengdur ákveðnum svæðum og árstímum fremur en almennri fjölgun ferðamanna yfir allt árið.

Þetta er í sjálfu sér ekki áhyggjuefni. Eftir meira en áratug af nær linnulausri fjölgun ferðamanna er eðlilegt að greinin færist yfir í hóflegri vaxtarfasa. Hins vegar þýðir það að framlag ferðaþjónustunnar til útflutningsvaxtar verður mun minna á næstu árum en á árunum fyrir faraldur.

Blandaðar vendingar í vöruútflutningi

Vöruútflutningur hefur þróast með misjöfnum hætti milli greina á árinu. Nýjustu vöruskiptatölur Hagstofunnar benda til þess að útflutningsverðmæti sjávarafurða hafi haldið ágætlega velli á meðan þróun í málmum og öðrum iðnaðarvörum hefur verið veikari.

Í sjávarútvegi vegur loðnan þungt. Eftir nokkur erfið ár hefur öflug vertíð skapað aukin útflutningsverðmæti og styrkt greinina verulega. Þar að auki heldur fiskeldi áfram að vaxa hratt og er orðið sífellt mikilvægari þáttur í útflutningssamsetningu landsins. Þótt botnfisksafli og útflutningur sumra hefðbundinna sjávarafurða hafi verið undir þrýstingi vega þessir tveir þættir verulega á móti. Þá hefur verð á ýmsum botnfisktegundum verið tiltölulega hátt og munar þar mestu um hagfellt þorskverð.

Í málmum hefur þróunin verið veikari. Framleiðslutruflanir sem hófust í fyrra hafa enn sett mark sitt á útflutning áls. Hins vegar benda nýjustu upplýsingar til þess að framleiðslan sé komin í eðlilegt horf að nýju og að neikvæð áhrif framleiðsluhnökranna fari dvínandi. Á sama tíma hefur álverð hins vegar gefið nokkuð eftir frá þeim hæðum sem það náði í sumar þótt verðið sé vissulega enn hátt í sögulegum samanburði.

Þegar litið er yfir heildina má því segja að samdráttur í sumum stærstu hefðbundnu útflutningsgreinum hafi að talsverðu leyti verið jafnaður út af sterkari þróun annars staðar. Það undirstrikar hversu fjölbreyttari útflutningsgrunnur Íslands er orðinn samanborið við fyrri áratugi.

Vöxturinn færist í auknum mæli yfir í þjónustuútflutning

Þessi þróun sést einnig skýrt þegar útflutningshorfur næstu ára eru skoðaðar líkt og farið er yfir í nýlegri þjóðhagsspá okkar. Ferðaþjónustan hefur haldið sjó undanfarin ár þrátt fyrir vaxandi áskoranir og fjölgaði ferðamönnum lítillega bæði 2024 og 2025 samkvæmt brottfarartölum um Keflavíkurflugvöll. Horfur eru þó á lítilsháttar samdrætti í greininni á þessu ári eins og fyrr segir. Brottfararfarþegum frá Íslandi fækkaði lítillega á fyrstu þremur fjórðungum ársins  frá sama tíma í fyrra og tengifarþegum fækkaði töluvert meira á sama tíma.

Þrátt fyrir aðeins hægari gang í ferðaþjónustu eru horfur á áframhaldandi vexti útflutnings í heild. Þar mun hugverkaiðnaður gegna lykilhlutverki. Útflutningur vöru og þjónustu sem fellur undir hugverkaiðnað nam um 369 ma.kr. í fyrra og hefur ríflega tvöfaldast frá upphafi áratugarins.

Sérstaklega vekur athygli hinn öri vöxtur fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu. Tekjur af þeim liðum námu 129 ma.kr. frá miðju ári 2025 fram á mitt þetta ár og jukust um 65% milli ára. Þar vegur uppbygging gagnavera þyngst, en einnig hafa ýmis önnur fyrirtæki á sviði hugverkaiðnaðar sótt í sig veðrið hvað útflutningstekjur varðar.

Horfur eru á að þessi þróun haldi áfram á næstu árum. Meiri umsvif gagnavera, áframhaldandi vöxtur í lyfja- og lækningatækjaframleiðslu, aukið vægi fiskeldis og endurkoma álframleiðslu í eðlilegt horf ættu að styðja við útflutning. Samhliða er ráð fyrir hóflegum vexti ferðaþjónustu.

Eftir 1,5% útflutningsvöxt í fyrra gerum við því ráð fyrir nokkru meiri vexti á þessu ári og enn sterkari þróun árin 2027 og 2028. Mikilvægasta breytingin er þó ekki hraði vaxtarins heldur samsetning hans. Á meðan ferðaþjónustan færist inn í rólegri vaxtarfasa við hlið málmiðnaðar og sjávarútvegs eru nýjar útflutningsstoðir að taka við stærra hlutverki. Það gerir íslenskt hagkerfi bæði fjölbreyttara og líklegra til að standast betur sveiflur í einstökum atvinnugreinum.

Höfundur


Jón Bjarki

Aðalhagfræðingur


Hafa samband