Þjóðhagsspá Íslandsbanka: Hægur vöxtur, vaxandi þróttur

Greining Íslandsbanka spáir fyrir um þróun efnahagsmála árin 2026-2028


Í nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka er búist við svipuðum hagvexti á þessu ári og í fyrra, en að vöxturinn glæðist svo jafnt og þétt á spátímanum. Í ár styðja utanríkisviðskipti við hagvöxtinn þar sem útflutningur vex hraðar en innflutningur. Á sama tíma vex einkaneysla hægar en áður var talið og fjármunamyndun stendur nánast í stað. Á næstu tveimur árum tekur hagvöxtur við sér á ný, studdur af auknum krafti í innlendri eftirspurn, viðsnúningi í íbúðafjárfestingu og  fjölþættum útflutningsvexti, ekki síst í hugverkaiðnaði og landeldi.

Verðbólga hefur enn og aftur reynst þrálátari en áður var spáð og er nú að stærstum hluta þjónustudrifin. Aukinn slaki í hagkerfinu og hóflegri launahækkanir ættu þó að styðja við hjöðnun hennar á spátímanum. Forsenduákvæði kjarasamninga virkjaðist í september og samkvæmt spánni munu þeir halda, en gert er ráð fyrir að launaliðurinn hækki lítillega á næsta ári umfram það sem núverandi samningar kveða á um. Atvinnuleysi ílengist fram á næsta ár en minnkar svo samhliða auknum umsvifum í hagkerfinu.

Stýrivextir hafa verið hækkaðir um 0,75 prósentur það sem af er ári og eru nú 8,0%. Greining Íslandsbanka telur að vaxtahækkunarferlinu sé lokið og að stýrivextir haldist óbreyttir fram á næsta vor. Þá hefst hægfara vaxtalækkunarferli sem stendur fram á árið 2028 og gæti lokið með stýrivextina í kringum 6%.

Stiklað á stóru

  • Hagvöxtur – Glæðist jafnt og þétt á spátímanum. Spáð er 1,2% hagvexti í ár, 1,8% árið 2027 og 2,3% árið 2028

  • Utanríkisviðskipti – Viðskiptahalli minnkar á spátímanum. Viðskiptahalli í ár verður 3,3% af VLF og í kringum 1,0% árin 2027-2028

  • Vinnumarkaður – Slaki á vinnumarkaði en laun hækka áfram. Launavísitalan hækkar um 6,2% í ár, 6,0% árið 2027 og 4,9% árið 2028

  • Verðbólga – Aukinn slaki í hagkerfinu og hóflegri launahækkanir styðja við hjöðnun verðbólgunnar á spátímanum. Spáð er 5,4% verðbólgu að meðaltali í ár, 4,5% árið 2027 og 3,6% árið 2028

  • Vextir – Spáð er óbreyttum stýrivöxtum út þetta ár og að hægfara lækkunarferli hefjist á öðrum fjórðungi næsta árs. Stýrivextir gætu verið í kringum 6% á lokaári spátímans

  • Krónan – Líkur á veikingu krónu aukast jafnt og þétt á spátímanum. Gert er ráð fyrir að gengi hennar verði um 4% lægra í lok spátímans

Póstlisti Greiningar

Ekki missa af greiningum okkar á því helsta sem snertir efnahagslífið og skráðu þig á póstlistann okkar!

Höfundar þjóðhagsspár


Jón Bjarki Bentsson

Aðalhagfræðingur


Hafa samband

Bergþóra Baldursdóttir

Hagfræðingur í Greiningu


Hafa samband

Óskar Hrafnsson

Sérfræðingur


Hafa samband