Kynntu þér sparnað í sjóðum

Þegar vextir breytast hefur það einnig áhrif á vaxtakjörin þín. Það gæti því verið góður tími fyrir þig að huga að því að dreifa sparnaðinum og spara í sjóðum.

Kaupa í sjóðum

Fá ráðgjöf

Af hverju sjóðir?

  • Þegar vextir breytast hefur það fljótt áhrif á vaxtakjör. Því kann að vera skynsamlegt fyrir einstaklinga að færa hluta sparnaðar síns í sjóði til að ná fram hærri ávöxtun.

  • Einn helsti kostur sjóða er áhættudreifing og möguleikinn á að velja áhættustig sem hentar hverjum og einum. Þannig má draga úr áhrifum verðsveiflna einstakra eigna á afkomu sparnaðar.

  • Íslandssjóðir reka skuldabréfasjóði, hlutabréfasjóði og blandaða sjóði. Blandaðir sjóðir fjárfesta bæði í skuldabréfum og hlutabréfum og geta því verið hentugur kostur fyrir þá sem vilja dreifa áhættunni enn frekar.

  • Samkvæmt fjármálafræðum skila dreifð eignasöfn almennt hærri ávöxtun og lægri áhættu til lengri tíma litið.

Hvað ertu að gera við sparnaðinn?

Skrá mig á viðburð

Fræðslufundur um hvað þarf að hafa í huga með sparnaðinn þegar vaxtaumhverfið breytist. Fjallað verður um helstu kosti verðbréfasjóða og hvaða skref þarf að taka til að spara í sjóðum.

Fundurinn verður haldinn í útibúi Íslandsbanka í Smáralind miðvikudaginn 4. febrúar kl 17:00. 

Viltu vita meira um sjóði?

Að spara í sjóðum er einföld og góð leið til uppbyggingar á sparnaði. Ákjósanlegt er að nýta fleiri en einn sparnaðarkost en þannig má dreifa áhættunni og auka ávöxtunarmöguleika.

    Skoða nánar

    Hvernig byrja ég?

    Nauðsynlegt er að eiga vörslureikning til þess að fjárfesta í sjóðum og hlutabréfum. Vörslureikningur birtist í netbanka og appi. Þar er hægt að fylgjast með verðmæti fjárfestinga í sjóðum og verðbréfum.

      Stofna reikning

      Af hverju ætti ég að vera með áskrift?

      Góð leið til að byggja upp sparnað mánaðarlega. Þú færð 100% afslátt af kostnaði við kaup þegar þú sparar í áskrift. Lámarksfjárhæð í áskrift er aðeins 5.000 kr.

        Stofna áskrift

        Einkabanka­þjónusta


        Eignastýring Íslandsbanka býður upp á sérsniðna og alhliða fjármálaþjónustu fyrir efnameiri einstaklinga og lögaðila.

        Spurt og svarað


        Fyrir­varar


        Almennur fyrirvari vegna fjárfestinga í sjóðum

        Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Áhætta af fjárfestingu eykst ef fjárfestingin er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.

        Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða en þar er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættuþætti, fjárfestingarheimildir og notkun afleiðna. Fjárfestingarsjóðir hafa víðtækari fjárfestingarheimildir en verðbréfasjóðir og geta því verið áhættusamari fjárfesting. Upplýsingar um sjóðina eru fengnar frá Íslandssjóðum hf., rekstrarfélagi sjóðanna sem er dótturfélag Íslandsbanka hf.

        Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem eru taldar áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast nákvæmni né réttmæti þeirra. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.

        Gengisþróun og ávöxtun

        Tekið er tillit til umsýsluþóknunar við daglegan útreikning á gengi sjóða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt hvers sjóðs.