
Hvað ertu að gera við sparnaðinn?
Þegar vextir breytast hefur það fljótt áhrif á vaxtakjör. Á þessum fræðslufundi verður farið yfir hvað þarf að hafa í huga með sparnaðinn þegar vaxtaumhverfið breytist. Fjallað verður um helstu kosti verðbréfasjóða og hvaða skref þarf að taka til að hægt sé að kaupa í sjóðum.
Erindi flytja Linda Arnardóttir, verðbréfaráðgjafi í Verðbréfaráðgjöf Íslandsbanka, og Vignir Þór Sverrisson, fjárfestingastjóri eignastýringar hjá Íslandssjóðum.
Fundurinn fer fram í útibúi Íslandsbanka í Norðurturni, 1. hæð. Boðið verður upp á léttar veitingar meðan á fundinum stendur.