Vinnustaður vaxtar

Fólkið okkar er helsti styrkleiki bankans — þess vegna leggjum við áherslu á að skapa vinnustað þar sem fólk getur vaxið, lært og haft áhrif. Við bjóðum upp á nútímalegt, sveigjanlegt og framsækið umhverfi sem styður við ár­ang­ur og ánægju starfs­fólks. Viltu bætast í hópinn?

Besti staðurinn til að vaxa og þróast

Við viljum vaxa og þróast í starfi og það er mikilvægt að starfsumhverfið styðji við það.

Árangursmenning

Við ýtum undir árangursmenningu með skýrum markmiðum, ábyrgð, stöðugri endurgjöf og áherslu á að ná mælanlegum árangri í gegnum samvinnu og fagmennsku.

Framsækni

  • Við tileinkum okkur gagnrýnið hugarfar, spyrjum spurninga og leitum stöðugt leiða til að gera hlutina betri og skilvirkari – með opnum huga fyrir nýjum tækifærum og tækni.

Hreyfiafl

Bankinn býður starfsfólki að leggja sitt af mörkum til góðgerðarmála þar sem hægt er að verja einum vinnudegi á ári í þágu góðs málefnis.

Jöfn tækifæri

Íslandsbanki leggur áherslu á jafnrétti, fjölbreytileika og mannréttindi og býður öll velkomin.

Starfsfólk hefur áhrif

  • Íslandsbanki leggur metnað sinn í að starfsfólk sé vel upplýst um starfsemi bankans og taki þátt í stefnumótun hans innan sviða og teyma.

Félagslíf

Öflugt félagslíf og fjölbreytt hópa- og klúbbastarfsemi ríkir í bankanum og gegnir starfsfólk mikilvægu hlutverki við að skapa bestu liðsheildina.

Fæðingarorlof


Bankinn tryggir starfsfólki sínu 80% laun á meðan á fæðingarorlofi stendur, auk þess að safna orlofsréttindum. Komið er til móts við óskir starfsfólks um sveigjanlega töku fæðingar- og foreldraorlofs og stuðlað að auðveldri endurkomu til starfa að loknu fæðingarorlofi.

Mannauðsstefna


Markmið Íslandsbanka er að ráða, efla og halda hæfu og traustu starfsfólki. Framtíðarsýn Íslandsbanka í mannauðsmálum er að vera besti vinnustaðurinn til að vaxa og þróast. Ein sterkasta þörf starfsfólks er að fá að vaxa og dafna og með því að uppfylla þessa þörf er bankinn líklegri til að ráða og halda í hæft og traust starfsfólk.

Rödd starfsfólks skiptir máli

Skv. vinnustaðagreiningu

4,38 af 5
Starfsánægja
4,37 af 5
Stolt
4,32 af 5
Helgun
4,46 af 5
Mælir með vinnustaðnum