Skuldabréfalán

Við bjóðum upp á fjölbreytt lán hvort sem þú ert að kaupa húsnæði, endurfjármagna, kaupa frístundahús eða atvinnuhúsnæði, stendur í framkvæmdum, ert að ljúka námi eða hvað sem er. Sjá einnig lán fyrir þig ef lánsupphæð er undir 2.450.000.-
Lánin eru óverðtryggð og bera kjörvexti skv. vaxtatöflu að viðbættu álagi eftir lánshæfi og tryggingum. Þú getur valið um jafnar greiðslur eða jafnar afborganir og greiðir engin gjöld fyrir að greiða inn á eða uppgreiða lánið.
Til þess að sækja um lán þarft þú að fara í greiðslumat og velja „Önnur lán“ sem ástæðu. Í kjölfarið hefur starfsfólk lánaþjónustu samband við þig. Þú getur líka bókað tíma hjá einstaklingsráðgjöfum okkar og við förum yfir stöðuna með þér.