Millifærslur yfir 4.500 kr. verða framvegis staðfestar með rafrænum skilríkjum

Framvegis munu viðskiptavinir þurfa að staðfesta millifærslur sem fara yfir 4.500 kr. með rafrænum skilríkjum í síma eða Auðkennisappi. 


Upphæðir lægri en 4.500 kr. verða áfram staðfestar með öryggisnúmeri. Ástæðan fyrir breytingunni er fyrst og fremst til að auka öryggi viðskiptavina í takt við reglur um sterka sannvottun.

Við hvetjum þau sem eru ekki með rafræn skilríki til að ganga frá því við fyrsta tækifæri.

Hvar fæ ég rafræn skilríki?

  • Þú getur fengið rafræn skilríki í næsta útibúi Íslandsbanka. Mikilvægt er að hafa gilt persónuskilríki (ekki stafrænt) meðferðis þegar þú kemur á afgreiðslustað. Sjá nánar um hvernig á að setja upp rafræn skilríki.
  • Einnig getur þú virkjað rafræn skilríki í sjálfsafgreiðslu með Auðkennisappinu. Til þess þarftu að sækja Auðkennisappið, eiga gilt íslenskt vegabréf, hafa náð 18 ára aldri og aðgang að snjalltæki sem styður NFC lestur.

Þeir sem ekki geta, af einhverjum ástæðum, verið með rafræn skilríki eða Auðkennisappið munu áfram geta notað öryggisnúmer til staðfestingar á fjárhagslegum aðgerðum yfir 4.500 kr. í netbanka og appi.