Heimilin halda að sér höndum

Kortavelta stóð í stað að raunvirði í september og dróst saman á þriðja ársfjórðungi, í fyrsta sinn síðan undir lok árs 2023. Væntingar heimila eru jafnframt aftur komnar í lággildi, þótt áform um stórkaup haldi nánast velli. Þróunin rímar við hægari vöxt einkaneyslu, en við gerum ráð fyrir að hún nái vopnum sínum á ný á næstu árum.


Landsmenn straujuðu greiðslukort sín fyrir 138 ma.kr. í september samkvæmt nýbirtum tölum frá Seðlabankanum. Kortavelta jókst um 5,3% í krónum talið miðað við sama mánuð í fyrra en að teknu tilliti til verðlags- og gengisbreytinga stóð hún í stað. Hafa ber í huga að samanburðurinn er við sterkan mánuð, en kortaveltan jókst um 6,7% að raunvirði í september í fyrra.

Undirliggjandi þróun er þó skýr. Á þriðja ársfjórðungi dróst kortavelta saman um 0,5% að raunvirði milli ára eftir 0,3% vöxt á öðrum fjórðungi, og er það í fyrsta sinn síðan á lokafjórðungi ársins 2023 sem hún dregst saman á ársfjórðungsgrunni. Að jafnaði hefur kortaveltan aukist um tæplega hálft prósent að raunvirði það sem af er ári samanborið við nærri 4,5% vöxt á sama tímabili í fyrra.

Líkt og lengst af á árinu var það velta erlendis sem hélt kortaveltunni uppi á meðan velta innanlands gaf eftir. Kortavelta heimila innanlands dróst saman um 1,7% að raunvirði milli ára í september og hefur nú minnkað í sjö af fyrstu níu mánuðum ársins. Að jafnaði hefur hún dregist saman um 1,6% það sem af er ári, en á sama tíma í fyrra jókst hún um 1,8%. Hefur hún aðeins tvisvar dregist meira saman á fyrstu níu mánuðum árs frá árinu 2011, árin 2013 og 2023.

Væntingar heimila í lággildum

Samhliða samdrætti í kortaveltu innanlands tók væntingavísitalan dýfu í september. Hún mældist 51,5 stig og lækkaði þar með um 24 stig á milli mánaða. Væntingarnar eru því aftur komnar á svipaðar slóðir og mánuðina fyrir ágúst síðastliðinn, en þá tók vísitalan óvænt stökk upp á við þegar hún hækkaði um tæp 19 stig. Það má því ætla að ágústmælingin hafi verið frávik fremur en vísbending um viðsnúning í viðhorfum heimila. Heimilin virðast því enn talsvert svartsýn um stöðu og horfur í efnahagslífinu.

Þrátt fyrir almennt lágar væntingar heimila undanfarin misseri heldur stórkaupavísitala Gallup nánast velli. Vísitalan, sem mælir áform neytenda um stærri neysluútgjöld, mælist 67,2 stig, lækkar aðeins eða um 0,2 stig milli mælinga og er áfram yfir meðaltali síðustu tíu ára. Það bendir til þess að ekki hafi dregið úr neysluáformum heimila í sama mæli og almennum væntingum til efnahagslífsins. Færri hyggjast kaupa húsnæði eða bifreið á næstu mánuðum, en áformin um húsnæðiskaup voru óvenju mikil í síðustu mælingu, í júní síðastliðnum, og eru nú nær því sem sést hefur á undanförnum ársfjórðungum. 

Ferðahugur landsmanna virðist hins vegar aukast. Tæplega 55% svarenda telja mjög líklegt að þeir fari í utanlandsferð á næstu tólf mánuðum, samanborið við tæp 51% á fyrri ársfjórðungi og 50% á sama tíma í fyrra. Ferðaáform eru því töluverð þótt utanlandsferðum Íslendinga hafi fækkað það sem af er ári. Á fyrstu níu mánuðum ársins voru þær 9,4% færri en á sama tíma í fyrra. 

Það rímar ágætlega við þróun kortaveltu Íslendinga erlendis, en hægt hefur á vexti hennar á síðustu mánuðum. Í september jókst hún um 5,2% að raunvirði milli ára, en á þriðja ársfjórðungi í heild jókst hún aðeins um 3,2%. Það er hægasti vöxtur síðan á öðrum ársfjórðungi 2024.

 Kortavelta erlendis endurspeglar þó ekki eingöngu neyslu Íslendinga á ferðalögum heldur einnig kaup í erlendum netverslunum. Erlend netverslun nam tæplega 3 ma.kr. í ágúst samkvæmt gögnum RSV og hefur farið vaxandi, þótt hún sé enn aðeins um 9% af heildarveltu Íslendinga erlendis.

Hægari einkaneysluvöxtur framundan

Einkaneysla tók vel við sér á síðasta ári og jókst um 3,6%, þrátt fyrir vaxandi slaka á vinnumarkaði og kólnandi hagkerfi. Á þessu ári hefur hins vegar dregið talsvert úr vextinum og raunar hraðar en við gerðum áður ráð fyrir. Á fyrri helmingi ársins jókst einkaneysla aðeins um 1,3% á milli ára og benda kortaveltutölur og væntingar heimila til þess að áfram hafi hægt á vextinum á þriðja ársfjórðungi. Stórkaupavísitala Gallup bendir hins vegar til þess að enn sé nokkur þróttur í neysluáformum heimila þrátt fyrir aukna varkárni. 

Almennt virðast heimili hafa orðið varkárari í neyslu sinni í takti við þrálátari verðbólgu, háa vexti og aukna óvissu um efnahagshorfur og atvinnuástand. Það birtist skýrt í hægari vexti einkaneyslu á árinu. Þrátt fyrir að heimilin haldi fastar um budduna er staða þeirra almennt sterk. Skuldsetning heimilanna er hófleg og vanskil lítil í sögulegu samhengi. Sparnaður heimilanna er enn talsverður eftir faraldursárin þótt gengið hafi verið á hann frá þeim tíma. Samhliða því hefur kaupmáttur haldið velli og horfur eru á áframhaldandi vexti kaupmáttar á spátímanum. Þessir þættir ættu að styðja við einkaneyslu á komandi misserum þrátt fyrir aukinn slaka í hagkerfinu. 

Í nýlegri þjóðhagsspá okkar lækkuðum við spána fyrir einkaneyslu á þessu ári og því næsta. Meginskýringin er sú að við teljum kólnun hagkerfisins vara lengur en áður var gert ráð fyrir og slaki á vinnumarkaði verði einnig þrálátari. Við gerum þó ráð fyrir að einkaneysla haldi áfram að aukast næstu ár, en með hægari takti. Eftir því sem hagkerfið tekur við sér á ný með lægri vöxtum, minni verðbólgu og minna atvinnuleysi teljum við að vöxtur einkaneyslu muni smám saman sækja í sig veðrið á ný. Einkaneysla vegur þungt til hagvaxtar og hægari vöxtur hennar er ein meginástæða þess að við spáum minni hagvexti á fyrri hluta spátímans en áður. 

Höf­und­ar


Berg­þóra Bald­urs­dótt­ir

Hagfræðingur í Greiningu


Hafa samband

Ósk­ar Hrafns­son

Sérfræðingur í Greiningu


Hafa samband