Fjármál húsfélaga 

Kæri viðskiptavinur,

Við viljum bjóða þér til síðdegisfundar um fjármál húsfélaga í samstarfi við Húseigendafélagið, fimmtudaginn 9. október klukkan 16.30-17.30. Húsið opnar klukkan 16.00. Boðið verður upp á léttar veitingar á meðan fundi stendur.

Dagskrá fundarins:

Húsfélagaþjónusta Íslandsbanka - Ólöf Gísladóttir, ráðgjafi fyrirtækja hjá Íslandsbanka.

Farið verður yfir þá þjónustu sem er til staðar í netbanka, hvað ber að hafa í huga við gerð ársuppgjörs og hvaða þjónustu bankinn býður húsfélögum.

Lög og reglur húsfélaga - Jónína Þórdís Karlsdóttir, lögmaður hjá Húseigendafélaginu.

Farið verður yfir þau lög og reglur sem gilda um fjármál og fjárhag húsfélaga og ákvarðanatöku.

Húsfélög og tryggingar - Snorri Guðmundsson, hópstjóri eignatjóna hjá VÍS. 

Mikilvægi húseigendatryggingar og kostir þess að húsfélög séu með sameiginlega tryggingu

 

Marteinn Már Guðgeirsson, forstöðumaður hjá Íslandsbanka, opnar fundinn og stýrir umræðum

 

Okkur langar að bjóða þér 20% afslátt á sýninguna Íbúð 10B - Húsfélagsfundur verður að vígvelli, sem sýnd er í Þjóðleikhúsinu. Þú getur keypt miða á afslætti hér.

 

Einnig viljum við benda þér á að húsfélag sem er í viðskiptum hjá Íslandsbanka fær 20 % afslátt af félagsgjöldum á fyrsta ári hjá Húseigendafélaginu. Hægt er að óska eftir aðild með því að senda póst á: postur@huso.is

Viðburður

16:30-17:30

Norðurturn, 9. hæð

Þessi viðburður er liðinn