Aðalfundur húsfélaga

Við viljum bjóða þér til síðdegisfundar um aðalfund húsfélaga í samstarfi við Húseigendafélagið, miðvikudaginn 4. febrúar klukkan 16:30-18:00

Dagskrá fundarins:

Aðalfundur - Jónína Þórdís Karlsdóttir, lögmaður hjá Húseigendafélaginu.

Farið verður yfir starfsemi og eðli húsfélaga og hvernig stjórn húsfélaga beri að boða til og halda aðalfund þess ár hvert. Þá verður einnig farið yfir reglur um efni aðalfundar, hússjóð og sitthvað fleira.

Bankinn og húsfélagið – Ólöf Gísladóttir, ráðgjafi fyrirtækja hjá Íslandsbanka.

Farið verður yfir þau gögn sem bankinn óskar eftir að loknum aðalfundi og í hvaða tilvikum. Einnig verður farið yfir rekstraryfirlit og hvernig það geti nýst í gerð ársreikninga húsfélagsins.

Marteinn Már Guðgeirsson, forstöðumaður hjá Íslandsbanka, opnar fundinn og stýrir umræðum.

Húsfélögum í viðskiptum hjá Íslandsbanka býðst 20% afsláttur af árgjaldi fyrsta árið hjá Húseigendafélaginu. Til þess að nýta afsláttinn þarf að sækja um aðild með því að senda póst á ​​​​postur@huso.is​​​​​.

Fundurinn verður haldinn á 9.hæð í höfuðstöðvum Íslandsbanka í Norðurturni við Smáralind og opnar húsið klukkan 16:00

Viðburður

16:30 - 18:00

Höfuðstöðvum Íslandsbanka í Norðurturni, 9. hæð

Þessi viðburður er liðinn