Frí áskrift í sjóðum
Viltu láta sérfræðinga Íslandssjóða sjá um sparnaðinn fyrir þig? Það er einfalt að skrá sig í áskrift í sjóðum í netbanka Íslandsbanka.
Viltu láta sérfræðinga Íslandssjóða sjá um sparnaðinn fyrir þig? Það er einfalt að skrá sig í áskrift í sjóðum í netbanka Íslandsbanka.
Sjóðir taka á móti fjármagni frá einstaklingum og fyrirtækjum og fjárfesta því m.a. í skuldabréfum og hlutabréfum út frá ákveðinni fjárfestingastefnu. Fyrsta skrefið sem þú þarft að taka til að fjárfesta í sjóðum er að stofna vörslureikning, reikning sem er geymslustaður fyrir fjárfestingar.
Áskrift í sjóðum er þægileg leið til að byggja upp sparnað til lengri tíma. Þú velur fasta upphæð sem er skuldfærð mánaðarlega og þegar þú skráir þig í áskrift færðu 100% afslátt af kostnaði við kaup og greiðir ekkert afgreiðslugjald. Lágmarksupphæð er aðeins 5.000 kr.
Ef þú ert að leita að hefðbundnum skammtímasparnaði með góðum vöxtum, án binditíma, þá gæti sparnaðarreikningurinn Ávöxtun hentað þér.
Ávöxtun er með 6,8% vöxtum og er óverðtryggður. Vextir eru greiddir út mánaðarlega.
Verðbréfaráðgjafar okkar búa yfir mikilli reynslu og þekkingu og eru ávallt tilbúnir til að aðstoða. Ekki hika við að bóka tíma hjá ráðgjafa ef þú vilt fá nánari upplýsingar eða aðstoð við kaup í sjóðum.
Almennur fyrirvari vegna fjárfestinga í sjóðum
Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Áhætta af fjárfestingu eykst ef fjárfestingin er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.
Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða en þar er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættuþætti, fjárfestingarheimildir og notkun afleiðna. Fjárfestingarsjóðir hafa víðtækari fjárfestingarheimildir en verðbréfasjóðir og geta því verið áhættusamari fjárfesting. Upplýsingar um sjóðina eru fengnar frá Íslandssjóðum hf., rekstrarfélagi sjóðanna sem er dótturfélag Íslandsbanka hf.
Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem eru taldar áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast nákvæmni né réttmæti þeirra. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.
Gengisþróun og ávöxtun
Tekið er tillit til umsýsluþóknunar við daglegan útreikning á gengi sjóða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt hvers sjóðs.