Brottförum erlendra farþega um Keflavíkurflugvöll fækkaði verulega milli ára í nóvember. Samkvæmt nýbirtum tölum Ferðamálastofu voru brottfarir erlendra farþega frá landinu um flugvöllinn 141 þúsund í nóvembermánuði. Það jafngildir fækkun upp á 13% á milli ára. Svo snarpur samdráttur hefur ekki komið fram í mánaðartölunum síðan í mars á þessu ári en þá hafði tímasetning páska trúlega töluverð áhrif á samanburðinn milli ára. Nóvember er annar fækkunarmánuðurinn í röð þar sem ferðafólki fækkaði um rúm 6% á þennan mælikvarða í október.
Vetrarlægð í ferðaþjónustunni
Útlit er fyrir talsverða fækkun erlendra ferðamanna á lokafjórðungi ársins eftir allgóða háönn. Horfur fyrir næsta ár hafa versnað talsvert og líklega mun ferðamönnum til landsins fækka eitthvað frá þessu ári.
Mestu munar um nærri 16% fækkun Bandaríkjamanna og nærri þriðjungs fækkun Breta milli ára í nóvembertölunum. Hins vegar fjölgaði Kínverjum um 57% á milli ára. Bandaríkjamenn voru ríflega fimmtungur allra erlendra brottfararfarþega og þar á eftir komu Bretar (17% af heild), Kínverjar (6,5%), Þjóðverjar (5,1%) og Ítalir (4,7%).
Það sem af er ári hafa ríflega 2,1 milljónir erlendra farþega farið frá landinu um Keflavíkurflugvöll sem svarar til 0,7% fjölgunar milli ára.
Óbreyttar tekjur þrátt fyrir fjölgun á háönn
Þrátt fyrir ríflega 7% fjölgun ferðafólks til Íslands á þriðja ársfjórðungi frá sama tíma í fyrra stóðu útflutningstekjur vegna ferðalaga og farþegaflutninga með flugi nánast í stað á milli þessara tímabila. Væntanlega má rekja það til minni tekna af ferðamönnum sem einungis millilentu hér á landi á ferð sinni yfir Atlantshafið. Til að mynda kom fram í kynningu á uppgjöri 3. ársfjórðungs Icelandair að svokölluðum „via farþegum“ þ.e. farþegum sem fljúga milli Norður-Ameríku og Evrópu með flugfélaginu, fækkaði um 11% milli ára á fjórðungum. Á sama tíma fjölgaði bæði farþegum sem sóttu Ísland heim sem lokaáfangastað og farþegum sem flugu héðan út fyrir landsteinana með flugfélaginu milli ára.
Á sama tíma fjölgaði hins vegar utanlandsferðum Íslendinga um tæp 11% og endurspeglast það í auknum útgjöldum vegna ferðalaga erlendis. Alls jókst innflutningur þjónustu vegna farþegaflutninga og ferðalaga um rúm 10% í krónum talið á þriðja fjórðungi frá sama tíma í fyrra. Það dró því heldur úr afgangi af þessum hluta þjónustujafnaðar við útlönd milli ára en hann nam þó 162 ma.kr. á þriðja fjórðungi. Líkt og fyrri daginn var hann uppistaðan í þeim 137 ma.kr. afgangi af þjónustujöfnuði sem mældist á tímabilinu samkvæmt tölum Hagstofunnar.
Viðsnúningur eftir allgóða háönn
Eftir myndarlega háönn hefur nokkuð hægt á umsvifum í ferðaþjónustunni eftir því sem leið á haustið. Eins og sjá má af myndinni sýna hinir ýmsu skammtímahagvísar tengdir ferðaþjónustu sömu leitnina undanfarið, hvort sem litið er til þróunar kortaveltu erlendra korta, fjölda gistinátta eða brottfara um Keflavíkurflugvöll. Á alla þessa kvarða hefur hægt verulega á vexti milli ára eftir því sem dagurinn styttist.
Seðlabankinn birti í nýlegum Peningamálum áhugaverða mynd af því sem kann að vera í pípunum fyrir lokafjórðung ársins. Má þar sjá fækkun í áætluðum heildar flugferðum til og frá landinu á tímabilinu frá sama tíma í fyrra. Svipaða sögu segja bókanir gististaða í gegn um netbókunarþjónustuaðila. Áhugi á Íslandsferðum miðað við Google-leitarniðurstöður virðist þó hafa tekið fjörkipp upp á síðkastið og vel má ímynda sér að það tengist sólmyrkvanum sem sjást mun frá Íslandi í ágúst á næsta ári.
Fækkar ferðamönnum á næsta ári?
Við fjölluðum fyrr í haust um þær blikur sem eru á lofti í ýmsum helstu útflutningsgreinum þjóðarbúsins. Þar var meðal annars komið inn á vaxandi áhyggjur innan ferðaþjónustugeirans af bókunarstöðu vetrarins sem og óvissum horfum fyrir komandi ár í heild.
Nýlegar spár og greiningar gera ýmist ráð fyrir lítt breyttum ferðamannafjölda á næsta ári eða einhverjum samdrætti. Má þar nefna að nýbirt spá Isavia gerir ráð fyrir því að farþegum um Keflavíkurflugvöll fækki um ríflega 7% á næsta ári frá árinu sem nú er að renna sitt skeið. Sú fækkun er þó að mestu leyti til komin vegna færri tengifarþega sem og samdráttar í utanlandsferðum Íslendinga. Hljóðar spá Isavia upp á ríflega 1% fækkun í komum erlendra ferðamanna til landsins á næsta ári. Heldur dekkri tónn er sleginn í gervigreindarspá Ferðamálastofu þar sem áætlað er að erlendum ferðamönnum til landsins fækki um tæp 3% á árinu 2026. Svipuð forsenda var lögð til grundvallar í sviðsmynd okkar fyrr í haust þar sem 3% fækkun ferðafólks var hluti af greiningu á hugsanlegum áhrifum af mótbyr í útflutningsgreinum á hagþróun. Þykir okkur sú niðurstaða nú líklegri en sú 3,6% fjölgun á árinu 2026 sem við spáðum í haust. Á hinn bóginn gerir Seðlabankinn ráð fyrir, í nýlega birtum Peningamálum, að umsvif ferðaþjónustunnar vaxi lítillega á næsta ári þótt bankinn geri nú ráð fyrir minni tekjum af farþegaflutningum og heldur færri ferðamönnum á næsta ári en í fyrri spá.
Fjöldi ferðafólks til landsins náði hámarki árið 2018 þegar brottfarir erlendra farþega um Keflavíkurflugvöll voru ríflega 2,3 milljónir. Vaxandi líkur eru á því að það met muni standa enn um sinn. Það ætti að róa þá sem mestar áhyggjur hafa af álagi vegna greinarinnar á hérlenda innviði og íbúðamarkað en eru hins vegar síður góðar fréttir fyrir horfur um útflutningstekjur þjóðarbúsins og hagvöxt í heild.

