Matvöruverð hefur hækkað nokkuð síðustu mánuði, en hækkunin var nú minni en áður. Matvöruverð hækkaði um 0,7% á milli mánaða (0,11% áhrif á VNV), að mestu vegna hækkunar á mjólkurvörum en einnig kjöti. Fyrirséð var að mjólkurvörur myndu hækka í kjölfar ákvörðunar Verðlagsnefndar búvara sem hækkaði verð á mjólkurvörum til bænda. Vonir standa til að áfram dragi úr hækkunum á matvöruverði á næstu mánuðum.
Fatnaður og skór hækkuðu um 1,2% í verði (0,04% áhrif á VNV). Útsölulok skýra þessa hækkun en við höfðum þó búist við meiri hækkun í flokknum og að útsölur myndu ganga að fullu til baka.
Fasteignamarkaður til friðs?
Húsnæðisflokkurinn í heild hækkaði um 0,23% (0,07% áhrif á VNV). Greidda húsaleigan hækkaði um 1% (0,04% áhrif á VNV), annan mánuðinn í röð. Reiknuð húsaleiga hækkaði hins vegar einungis um 0,13% (0,03% áhrif á VNV). Undanfarna mánuði hefur hækkun reiknaðrar húsaleigu verið mjög hófleg og hefur hún ekki hækkað minna frá janúar 2025. Fyrir verðbólguhorfur er það jákvætt að fasteignamarkaður er orðinn rólegur og er ekki helsti áhrifavaldur verðbólgu um þessar mundir.
Verðbólguhorfur næstu mánuði
- apríl: 0,4% hækkun VNV (4,8% ársverðbólga) – Eldsneyti heldur áfram að hækka. Flugfargjöld hækka smávegis
- maí: 0,25% hækkun VNV (4,9% ársverðbólga) – Eldsneyti hækkar en flugverð lækkar lítillega
- júní: 0,6 hækkun VNV (4,6% ársverðbólga) – Eldsneyti hækkar en með minna móti. Flugfargjöld, veitingahús og gistiþjónusta hækka vegna árstíðarsveiflu