Verðbólguspá: Ljóst er að forsendur kjarasamninga bresta

Við spáum því að verðbólga aukist í 5,6% í ágúst  og því virðist nokkuð ljóst að forsenduákvæði kjarasamninga mun virkjast. Vísbendingar eru um að sólmyrkvinn hafi tímabundið ýtt undir verðhækkanir í sumum liðum ferðaþjónustu, þótt áhrifin virðist takmörkuð. Horfur eru á að verðbólga verði áfram veruleg fram eftir haustinu.


Við spáum því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,15% í ágúst frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir mun ársverðbólga aukast úr 5,3% í 5,6% og hefur þá ekki mælst meiri síðan í ágúst 2024. Útsölulok setja svip sinn á mælinguna en einnig hækka reiknuð húsaleiga og háskólagjöld. Áhugavert verður að sjá hvort aukin aðsókn ferðamanna í tengslum við sólmyrkvann hafi áhrif á verðmælinguna í ágúst. Við spáum minni lækkun flugfargjalda en oft á þessum árstíma auk þess sem verð á veitinga- og gistiþjónustu hækkar. Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs 27. ágúst næstkomandi.

Útsölulok og húsnæði vega þungt

Útsölulok vega þyngst til hækkunar VNV í ágúst samkvæmt spánni. Þótt áhrifanna gæti víðar í vísitölunni eru þau mest í liðunum föt og skór og innanstokksmunir og heimilisbúnaður. Við spáum því að verð á fötum og skóm hækki um 1,3% milli mánaða  (0,04% áhrif á VNV). Jafnframt gerum við ráð fyrir að verð á innanstokksmunum og heimilisbúnaði hækki um 1,4% (0,05% áhrif á VNV).

Húsnæði á áfram sinn stall í hækkun VNV. Samkvæmt spá okkar hækkar reiknuð húsaleiga um 0,4% (0,08% áhrif á VNV). Háskólagjöld hækka einnig í kjölfar lagabreytinga sem hækkuðu hámark skrásetningargjalds opinberra háskóla úr 75 þúsund krónum í 100 þúsund krónur. Við áætlum að áhrifin nemi 0,07% á VNV.

Hækkar verðlag vegna sólmyrkvans?

Að undanförnu hefur því verið velt upp hvort sólmyrkvinn gæti haft áhrif á verðbólgumælingar þar sem hann á sér stað á sama tíma og verðmælingavika Hagstofunnar. Samkvæmt okkar mælingum er mögulegt að aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvann hafi ýtt lítilega undir verðhækkanir í tilteknum liðum ferðaþjónustu, einkum gisti- og veitingaþjónustu. Áhrifin virðast þó ekki veruleg en ferðaþjónusta vegur nú um 6,5% í vísitölu neysluverðs. Mikilvægt er þó að hafa í huga að slík áhrif væru líklega tímabundin. Hafi sólmyrkvinn stuðlað að hækkun verðs í ágúst má ætla að verðþróunin gangi að einhverju leyti til baka í næsta mánuði.

Við gerum ráð fyrir að verð á veitingahúsum og gistiþjónustu hækki um 0,85% (0,05% áhrif á VNV). Hækkunin stingur ekki í stúf en er þó meiri en á sama tíma undanfarin ár. Þá benda mælingar okkar til þess að árstíðarbundin lækkun flugfargjalda verði minni en við gerðum ráð fyrir í bráðabirgðaspá okkar. Við spáum 7% lækkun flugfargjalda milli mánaða (-0,25% áhrif á VNV).

Við gerum ráð fyrir lítilsháttar hækkun eldsneytisverðs eftir lækkun í síðasta mánuði. Frá síðustu verðmælingu hefur heimsmarkaðsverð á olíu hækkað á ný, í kjölfar þess að friðarviðræður Bandaríkjanna og Írans runnu út í sandinn.

Forsendur kjarasamninga bresta

Undanfarna mánuði hefur flest bent til þess að forsendur stöðugleikasamninganna bresti við endurskoðun þeirra í september. Nokkuð ljóst er að ársverðbólga í ágúst mun mælast yfir 4,7% viðmiði samninganna. Samkvæmt þessari spá mælist verðbólga 5,6%, eða næstum einu prósentustigi yfir viðmiðinu. Við þær aðstæður opnast heimild til að endurskoða samningana og, náist ekki samkomulag um viðbrögð við forsendubresti, segja þeim upp. Ríflega eitt ár er eftir af gildistíma samninganna, sem renna út í janúar 2028. Eftir á að koma til samningsbundin launahækkun um næstu áramót auk mögulegra hækkana á grundvelli kauptaxta- og framleiðniauka.

Verðbólga áfram þrálát

Eins og fram hefur komið spáum við því að verðbólga aukist í 5,6% í ágúst. Gangi spáin eftir hefur verðbólga ekki mælst meiri síðan í ágúst 2024. Við gerum ráð fyrir að verðbólga verði á svipuðum slóðum út árið áður en hún tekur að hjaðna á fyrstu mánuðum næsta árs.

Þróunin næstu mánuði skýrist að nokkru leyti af grunnáhrifum þar sem hagfelldar vísitölumælingar frá síðasta ári detta úr tólf mánaða takti verðbólgunnar. Til hækkunar leggjast einnig áhrif af lokum tímabundinnar lækkunar virðisaukaskatts á eldsneyti og hækkun komugjalda í heilsugæslu sem taka gildi í september.

Verðbólguhorfur næstu mánuði eru sem hér segir:

  • September: 0,2% hækkun VNV (5,7% ársverðbólga)– áhrif tímabundinna aðgerða stjórnvalda renna út og virðisaukaskattur á eldsneyti hækkar. Hækkun komugjalda í heilsugæslu hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti kemur að flugverð lækkar.
  • Október: 0,25% hækkun VNV (5,4% ársverðbólga) – árstíðarbundin áhrif fjara út og flestir liðir leggjast á eitt og hækka smávegis.
  • Nóvember: -0,4% lækkun VNV (5,5% ársverðbólga) - Dagur einhleypra lendir í verðsöfnunarvikunni. Flugverð lækkar. Þrátt fyrir lækkun VNV í nóvember hækkar ársverðbólga lítillega þar sem óvenju hagstæð mæling frá sama mánuði í fyrra fellur út úr tólf mánaða samanburðinum.

Næsta vaxtaákvörðun er í næstu viku, 19. ágúst. Verðbólgumæling fyrir ágústmánuð mun ekki liggja fyrir en Seðlabankinn mun gefa út hag- og verðbólguspá samhliða ákvörðuninni. Í nýútgefinni spá okkar gerum við ráð fyrir að peningastefnunefndin hækki vexti um 0,25 prósentur. Þrálát verðbólga og háar verðbólguvæntingar vega þar þungt.

Höfundar


Bergþóra Baldursdóttir

Hagfræðingur í Greiningu


Hafa samband

Óskar Hrafnsson

Sérfræðingur í Greiningu


Hafa samband

Lagalegur fyrirvari

Skýrsla þessi er tekin saman af Greiningu Íslandsbanka hf. (Íslandsbanki).

Upplýsingar í skýrslu þessari eru upprunnar frá innlendum og erlendum upplýsinga- og fréttaveitum, sem taldar eru áreiðanlegar, ásamt opinberum upplýsingum, eigin úrvinnslu Greiningar og mati á hverjum tíma. Upplýsingarnar hafa ekki verið kannaðar sjálfstætt af Íslandsbanka og ábyrgist bankinn ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra. Skoðanir höfunda geta breyst án fyrirvara og ber Íslandsbanka ekki skylda til að uppfæra, lagfæra eða breyta skýrslunni við breyttar forsendur.

Skýrslan er einungis birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum. Íslandsbanki og starfsmenn bankans bera ekki ábyrgð á viðskiptum sem kunna að vera gerð á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma í skýrslunni. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðleggingar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingarkosti sem í boði eru. Fjárfestingum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna alþjóðlegra fjárfestinga og gengisflökts gjaldmiðla. Fjárfestingamarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta er mismunandi. Bent skal á að árangur í fortíð er ekki trygging um árangur í framtíð.

Skýrslur og aðrar upplýsingar sem berast frá Íslandsbanka eru einungis ætlaðar til einkanota. Hvorki má afrita efnið, vitna í það né dreifa því, í heild eða að hluta, án skriflegs leyfis frá Íslandsbanka.

Skýrsla þessi er stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í henni sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem hún fjallar um.

Eftirlitsaðili: Fjármálaeftirlitið (www.fme.is).

BANDARÍKIN

Skýrslu þessari eða afritum hennar má ekki dreifa í Bandaríkjunum eða til viðtakenda sem eru bandarískir ríkisborgarar í andstöðu við takmarkanir sem kveðið er á um í bandarískum lögum. Dreifing skýrslunnar í Bandaríkjunum kynni að teljast brot á þeim lögum.

KANADA

Upplýsingarnar í skýrslu þessari eru ekki ætlaðar til dreifingar eða útbreiðslu með neinum hætti í Kanada og því ber ekki að líta á þær sem fjármálaráðgjöf eða ráðleggingu um fjárfestingar í skilningi kanadískra verðbréfalaga.

ÖNNUR LÖND

Lög og reglugerðir í öðrum löndum kunna einnig að takmarka dreifingu skýrslu þessarar.