Vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 0,94% í júní samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Ársverðbólga eykst lítillega úr 5,1% í 5,2%. Verðbólga miðað við VNV án húsnæðis jókst einnig úr 4,6% í 4,8%.
Mælingin er yfir spá okkar, en við höfðum gert ráð fyrir 0,7% hækkun vísitölunnar. Helsti munur á spá okkar og mælingu Hagstofunnar er að flugverð hækkaði talsvert meira en við gerðum ráð fyrir. Aðrir flokkar eru nokkuð í samræmi við spána.

