Verðbólga eykst í 5,9%

Ársverðbólga mælist 5,9% í september og hefur ekki mælst meiri síðan í ágúst 2024. Hækkun eldsneytisverðs, sem má að mestu rekja til loka tímabundinnar lækkunar virðisaukaskatts, vó þyngst til hækkunar en árstíðabundin lækkun flugfargjalda vó á móti. Útlit er fyrir að verðbólga haldist á svipuðum slóðum út árið en taki að hjaðna á fyrstu mánuðum næsta árs.


Vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 0,39% í september samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Ársverðbólga eykst því úr 5,6% í 5,9% og hefur ekki mælst meiri síðan í ágúst 2024. Verðbólga miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis jókst einnig, úr 5,2% í 5,7%, og hefur ekki mælst meiri síðan í desember 2023. Það endurspeglar að þróun verðbólgunnar á rætur að rekja til fleiri þátta en húsnæðis. Aukna verðbólgu nú má að hluta rekja til grunnáhrifa, enda hækkaði vísitalan aðeins um 0,11% í september í fyrra.

Mælingin er í takt við spá okkar. Við gerðum ráð fyrir 0,35% hækkun VNV og að ársverðbólga myndi mælast 5,9%. Spár greinenda lágu á bilinu 0,20% til 0,38% hækkun milli mánaða. Þótt heildarmælingin hafi verið nærri spá okkar vógust einstakir liðir á. Flugfargjöld lækkuðu minna en við gerðum ráð fyrir og heimilistæki hækkuðu meira. Einnig hækkaði reiknuð húsaleiga minna en við höfðum spáð.

Eldsneyti hækkar – flugfargjöld lækka

Flutningar er sá flokkur sem setur mestan svip á mælinguna í september, þótt áhrif flokksins í heild séu lítil (-0,04% áhrif á VNV), enda vegast tveir stærstu einstöku liðir mánaðarins á. Eldsneytisverð hækkaði um 16,5% á milli mánaða (0,43% áhrif á VNV) og hafði þar með mest áhrif einstakra liða til hækkunar.

Hækkunina má að mestu rekja til þess að tímabundnar aðgerðir stjórnvalda runnu út um mánaðamótin og hækkaði virðisaukaskattur á eldsneyti þá úr 11% í 24%, sem hækkaði verðið líklegast um 12%. Auk þess hefur heimsmarkaðsverð á olíu hækkað talsvert undanfarnar vikur. Hækkunin er í takt við spá okkar, en við gerðum ráð fyrir 16,2% hækkun (0,43% áhrif á VNV).

Það sem vegur á móti er árstíðabundin lækkun flugfargjalda. Flugfargjöld lækkuðu um 10,8% á milli mánaða (-0,36% áhrif á VNV) og höfðu þar með mest áhrif til lækkunar vísitölunnar. Lækkunin er þó minni en við gerðum ráð fyrir (tæplega 15%) og minni en í september í fyrra, þegar flugfargjöld lækkuðu um 14%.

Athygli vekur að verð á bílum lækkaði um 1,5% á milli mánaða (-0,06% áhrif á VNV) og hefur nú lækkað þrjá mánuði í röð. Bílaverð hækkaði um 13,3% í janúar í kjölfar breytinga á gjöldum tengdum ökutækjum og hefur um þriðjungur þeirrar hækkunar nú gengið til baka.

Hægari hækkun reiknaðrar húsaleigu?

Húsnæðisliðurinn hækkaði um 0,3% í september (0,10% áhrif á VNV) og reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,3% á milli mánaða (0,07% áhrif á VNV), sem er minni hækkun en við gerðum ráð fyrir (0,5%). Þetta er jafnframt minnsta mánaðarhækkun liðarins síðan í mars og mun hóflegri hækkun en í ágúst, þegar hann hækkaði um 0,9%. Greidd húsaleiga hækkaði sömuleiðis um 0,7% (0,03% áhrif á VNV) á milli mánaða.

Erfitt hefur reynst að spá fyrir um þróun liðarins frá því Hagstofan breytti aðferðafræði sinni sumarið 2024 og of snemmt er að fullyrða hvort hægari hækkun nú marki upphafið að rólegri takti. Fasteignamarkaðurinn hefur kólnað og íbúðaverð lækkað að raunvirði að undanförnu, en leiguverð hefur reynst seigara.

Komugjöld, útsölulok og heimilistæki

Heilsa hækkaði um 1,4% á milli mánaða (0,06% áhrif á VNV), sem er aðeins minna en við gerðum ráð fyrir. Í byrjun mánaðar tvöfölduðust komugjöld á heilsugæslu og hækkaði undirliðurinn önnur göngudeildarþjónusta því um 4,7% (0,05% áhrif á VNV). Breytingar á komugjöldum í sjúkraþjálfun, talþjálfun og iðjuþjálfun koma ekki fram fyrr en í októbermælingunni og gerum við því ráð fyrir að heilsuliðurinn hækki áfram í október.

Áhrif útsöluloka voru á sínum stað í mælingunni. Verð á fatnaði og skóm hækkaði um 1,1% (0,04% áhrif á VNV), eftir 4,7% lækkun í júlí og 2,8% hækkun í ágúst. Útsöluáhrifin hafa því ekki gengið að fullu til baka og er verð á fatnaði og skóm enn um 1% lægra en í júní, áður en sumarútsölurnar hófust.

Húsbúnaður og heimilistæki hækkuðu um 2,3% (0,09% áhrif á VNV). Hækkunina má að mestu rekja til heimilistækja, sem hækkuðu um 10,6% á milli mánaða eftir 6,8% lækkun í ágúst. Verð á húsbúnaði og heimilistækjum er þar með orðið um 1% hærra en í júní.

Matur og drykkir hækkuðu um 0,4% (0,06% áhrif á VNV) á milli mánaða en á móti lækkaði gistiþjónusta um 7,2% (-0,06% áhrif á VNV) nú þegar háannatími ferðaþjónustunnar er að baki.

Samsetning verðbólgunnar

Af 5,9% verðbólgu í september skýrir húsnæðisliðurinn áfram stærstan hluta, eða rúmlega 1,6%. Framlagið minnkar lítillega á milli mánaða, enda hækkaði reiknuð húsaleiga mun minna nú en í september í fyrra, þegar hún hækkaði um 0,9%. Verðhækkanir eru þó víðar en í húsnæði, enda mælist verðbólga án húsnæðis 5,7%. Opinber þjónusta skýrir næstmest, eða rúmlega 1,3%. Þar vegur kílómetragjaldið, sem tekið var upp um áramótin, enn þungt og nú bætast hærri komugjöld við. Áhrif komugjaldanna eru þó ekki að fullu komin fram, þar sem breytingin á komugjöldum í sjúkraþjálfun, talþjálfun og iðjuþjálfun mun koma fram í október eins og fyrr segir. Önnur þjónusta skýrir 1,0% og ferðaþjónusta 0,8%, og minnkar framlag ferðaþjónustunnar samhliða árstíðabundinni lækkun flugfargjalda og gistiþjónustu. Þjónusta, að húsnæði meðtöldu, skýrir því um 83% af heildarverðbólgunni.

Stærstu tíðindin í samsetningunni eru þó að framlag innfluttra vara hefur snúist við. Innfluttar vörur leggja nú 0,1% til ársverðbólgunnar eftir að hafa dregið úr henni alla mánuði ársins, síðast um 0,3% í ágúst. Þar vegur hækkun eldsneytisverðs þyngst. Neikvætt framlag fyrr á árinu skýrðist að stórum hluta af tilfærslu bensín- og dísilgjalda yfir í kílómetragjald um áramótin, sem flokkast undir opinbera þjónustu í stað þess að koma fram í verði innfluttra vara. Innlendar vörur skýra 0,6% af ársverðbólgunni og vörur í blönduðum flokkum 0,3%. Vörur skýra því samtals um 17% af heildarverðbólgunni.

Verðbólguhorfur næstu mánuði

  • Október: 0,3% hækkun VNV (5,7% ársverðbólga) – heilsuliðurinn hækkar áfram þegar hærri komugjöld í sjúkraþjálfun, talþjálfun og iðjuþjálfun koma fram. Eldsneytisverð hækkar áfram.
  • Nóvember: -0,4% lækkun VNV (5,8% ársverðbólga) – Dagur einhleypra lendir í verðsöfnunarviku Hagstofunnar og flugfargjöld lækka. Þrátt fyrir lækkun vísitölunnar eykst ársverðbólga lítillega, þar sem óvenju hagstæð mæling frá sama mánuði í fyrra fellur út úr tólf mánaða samanburðinum.
  • Desember: 0,85% hækkun VNV (5,5% ársverðbólga) – áhrif afsláttardaga ganga að mestu til baka og árstíðabundin hækkun flugfargjalda vegur til hækkunar.

Samkvæmt bráðabirgðaspánni verður verðbólga því þrálát út árið. Tólf mánaða taktur kjarnavísitalna Hagstofunnar hjaðnaði þó lítillega á milli mánaða, sem bendir til þess að undirliggjandi verðbólguþrýstingur sé ekki að aukast. Aukna verðbólgu nú má því að stórum hluta rekja til tímabundinna þátta.

Verðbólguhorfur næstu ár

Greining Íslandsbanka birti nýja þjóðhagsspá í dag sem hægt má nálgast hér. Við teljum að verðbólgan hjaðni nokkuð hratt á næsta ári og vera aftur við efri vikmörk verðbólgumarkmiðsins stærstan hluta ársins. Verðbólga nær þó ekki markmiði Seðlabankans á spátímanum, þótt hún nálgist 3% undir lok árs 2028.

Til þess að verðbólga hjaðni þarf að draga úr verðhækkunum á þjónustu, sem skýrir nú stærstan hluta hennar. Aukinn slaki í hagkerfinu og hóflegri launahækkanir ættu að stuðla að því. Óvissan er þó að mestu upp á við. Þar vega ástandið við Persaflóa og olíuverð þyngst, auk hættu á átökum á vinnumarkaði og veikari krónu. Á hinn bóginn gæti aðhaldssöm peningastefna kælt hagkerfið meira en spáin gerir ráð fyrir og verðbólga þá hjaðnað hraðar.

Höfundur


Óskar Hrafnsson

Sérfræðingur í Greiningu


Hafa samband