Vaxtamunur við útlönd er ein af lykilbreytunum að baki gengisþróun krónunnar og flæði fjármagns til og frá landinu. Í nýjum Peningamálum Seðlabankans, sem birt voru 18. nóvember, er bent á að hækkun langtímavaxta hérlendis hafi verið nokkru minni en í helstu viðskiptalöndum og að langtímavaxtamunur hafi því minnkað. Okkur fannst því fróðlegt að rýna í þróun vaxtamunarins á árinu á þrjá mælikvarða: muninn á stýrivöxtum, muninn á langtíma óverðtryggðum vöxtum og raunvaxtamun til skemmri og lengri tíma. Í þeim samanburði skoðuðum við annars vegar stærstu viðskiptamyntirnar, þ.e. bandaríkjadollar, evru og sterlingspund, og hins vegar Norðurlöndin og þá sér í lagi Noreg og Svíþjóð þar sem peningastefnan er sjálfstæð og gjaldmiðillinn fljótandi líkt og hérlendis.
Skammtímamunurinn hefur aukist
Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði meginvexti þrisvar á árinu, um 0,25 prósentur í hvert sinn, og hafa þeir verið 8,0% frá seinni hluta ágústmánaðar. Seðlabankar víða um heim hafa einnig snúið við blaðinu eftir vaxtalækkanir síðustu ára vegna þrálátrar verðbólgu víðast hvar á heimsvísu. Seðlabanki Bandaríkjanna hækkaði vexti um 0,25 prósentur í september í fyrsta sinn í um þrjú ár, Seðlabanki Evrópu hefur hækkað vexti tvisvar í 2,5% og Englandsbanki hækkaði vexti í 4,0% fyrr í mánuðinum. Á Norðurlöndunum hefur Norges Bank hækkað vexti tvisvar á árinu í 4,5%, sænski Riksbank hækkaði vexti í 2,0% í byrjun mánaðarins og danski seðlabankinn hefur fylgt Seðlabanka Evrópu eftir eins og fastgengisstefna hans byggir á.
Þar sem vextir hafa hækkað meira hér en víðast hvar annars staðar hefur stýrivaxtamunurinn aukist um 0,25-0,5 prósentur frá áramótum. Munurinn gagnvart Bandaríkjunum og Bretlandi er nú 4,0 prósentur, gagnvart evrusvæðinu 5,5 prósentur, gagnvart Noregi 3,5 prósentur og gagnvart Svíþjóð heilar 6,0 prósentur. Á þennan kvarða er vaxtamunurinn því býsna myndarlegur eins og oftast hefur verið raunin hin seinni ár.

