Landsmenn straujuðu greiðslukort sín fyrir tæplega 146 ma.kr. í október samkvæmt nýbirtum tölum frá Seðlabankanum. Kortavelta jókst um 7,1% í krónum talið miðað við sama mánuð í fyrra og að teknu tilliti til verðlags- og gengisbreytinga jókst hún um 1,7%. Vöxturinn er ekki mikill en þó meiri en verið hefur undanfarið, enda jókst ýmist kortaveltan lítið sem ekkert eða dróst saman milli ára frá júlí til september. Það vekur athygli í ljósi þess að samanburðurinn er við sterkan mánuð ári fyrr, en í október í fyrra jókst kortaveltan um 7,5% að raunvirði.
Utanlandsferðir lyfta kortaveltunni
Kortavelta jókst að raunvirði milli ára í október og skrifast vöxturinn alfarið á aukna veltu Íslendinga erlendis samhliða fjölgun utanlandsferða. Undirliggjandi þróun er óbreytt og bendir enn til hægs vaxtar einkaneyslu, þótt fjórði ársfjórðungur fari betur af stað en sá þriðji.
Rétt er þó að fara varlega í að draga víðtækar ályktanir af einni mánaðarmælingu. Að októbermánuði meðtöldum hefur kortaveltan staðið nánast í stað að raunvirði síðustu þrjá mánuði miðað við sama tímabil í fyrra.
Líkt og lengst af á árinu var það velta erlendis sem hélt kortaveltunni uppi. Kortavelta heimila erlendis jókst um 7,0% að raunvirði milli ára, svipað og að jafnaði á árinu, og skýrir hún allan vöxt kortaveltunnar í mánuðinum. Velta heimila innanlands stóð hins vegar nánast í stað, dróst raunar saman um 0,1% leiðrétt fyrir verðbólgu, en þar vega grunnáhrif þungt, því í október í fyrra jókst innlenda veltan um 4,0%. Velta innanlands hefur nú dregist saman í átta af fyrstu tíu mánuðum ársins, að jafnaði um 1,5%, en á sama tímabili í fyrra jókst hún um 2,0% að jafnaði. Heimilin virðast því enn halda að sér höndum í neyslu hér heima, enda vextir háir, kaupmáttarvöxtur hægur og vinnumarkaðurinn tekinn að kólna.
Fleiri utanlandsferðir
Tæplega 63 þúsund Íslendingar fóru utan um Keflavíkurflugvöll í október samkvæmt Ferðamálastofu, 14,4% fleiri en á sama tíma í fyrra, sem rímar vel við vöxt kortaveltu erlendis í mánuðinum. Er það aðeins í annað sinn á árinu sem utanlandsferðum fjölgar milli ára, en á fyrstu tíu mánuðum ársins voru þær engu að síður 7,2% færri en á sama tíma í fyrra, þegar utanlandsferðir og kortavelta erlendis héldust betur í hendur. Í ár hefur veltan hins vegar vaxið þótt ferðunum hafi fækkað, sem bendir til þess að Íslendingar eyði meiru í hverri ferð en áður. Kortavelta erlendis endurspeglar þó ekki eingöngu neyslu á ferðalögum heldur einnig kaup í erlendum netverslunum
Fjölgun utanlandsferða í október endurspeglast einnig í kortaveltujöfnuðinum, sem var neikvæður um 9,5 ma.kr. í október og hefur aldrei verið óhagstæðari í októbermánuði í krónum talið. Sá samanburður segir þó ekki alla söguna, enda hefur kortavelta milli landa nærri tvöfaldast í krónum talið frá árinu 2019 og sveiflurnar í jöfnuðinum stækkað að sama skapi. Hallinn endurspeglar engu að síður raunverulega breytingu milli ára: velta Íslendinga erlendis jókst um rúm 9% í krónum talið á meðan velta erlendra korta hér á landi jókst um rúm 4%, enda fjölgaði erlendum ferðamönnum aðeins um tæplega 1%.
Væntingar glæðast en heimilin leggja fyrir
Væntingavísitala Gallup hækkaði um níu stig í október og mældist 60,1 stig. Vísitalan hefur sveiflast mikið síðustu mánuði, en frá ágúst hefur hún að jafnaði mælst rúmlega 62 stig samanborið við um 50 stig á öðrum ársfjórðungi, þegar hún var í lággildum miðað við síðustu ár. Væntingar heimila virðast því hafa glæðst nokkuð frá því í vor, þótt vísitalan sé enn rúmlega 13 stigum lægri en fyrir ári og endurspegli talsvert meiri svartsýni en bjartsýni.
Á sama tíma leggja heimilin fyrir af krafti. Eins og við fjölluðum um nýlega námu innlán heimila 2.010 ma.kr. í lok september og höfðu aukist um 11,7% á einu ári. Háir vextir gera sparnað eftirsóknarverðari og fórnarkostnað neyslu meiri, og það er einmitt hluti af miðlun peningastefnunnar. Peningastefnunefnd kynnir vaxtaákvörðun sína á morgun og spáum við óbreyttum stýrivöxtum í 8,0%. Októbertölurnar breyta ekki þeirri mynd að aðhaldið bíti á eftirspurn heimila.
Hægur vöxtur einkaneyslu
Kortavelta dróst saman um 0,5% að raunvirði á þriðja ársfjórðungi og var það í fyrsta sinn síðan á lokafjórðungi ársins 2023 sem hún dregst saman á ársfjórðungsgrunni. Það bendir til þess að einkaneysla hafi vaxið hægt á fjórðungnum, en fyrstu tölur Hagstofunnar um fjórðunginn eru væntanlegar í nóvemberlok. Á fyrri helmingi ársins jókst einkaneysla um 1,3%.
Kortavelta í október gefur vísbendingu um að fjórði ársfjórðungur fari betur af stað en sá þriðji. Í þjóðhagsspá okkar frá því í september gerðum við ráð fyrir 1,1% vexti einkaneyslu í ár, 2,1% á næsta ári og 3,0% árið 2028. Uppsafnaður sparnaður heimilanna gæti stutt við þann bata þegar vextir lækka og óvissan minnkar.

