Innlán heimilanna í sögulegum hæðum 

Heimilin leggja nú fyrir af krafti. Innlán þeirra fóru í fyrsta sinn yfir 2.000 ma.kr. í sumar og hafa aukist um 210 ma.kr. á einu ári. Það kemur ekki á óvart: vextir á sparireikningum eru háir og óvissa í efnahagsmálum gefur heimilunum ríkari ástæðu til að eiga borð fyrir báru.


Innlán heimila námu 2.010 ma.kr. í lok september samkvæmt tölum Seðlabankans og höfðu aukist um 11,7% frá sama tíma í fyrra. Vöxturinn hefur færst í aukana síðustu mánuði, en í nóvember í fyrra var hann 8,4%. Að teknu tilliti til 5,9% verðbólgu í september hafa innlán heimila því aukist um ríflega 5% að raunvirði á einu ári.

Innlán heimila hafa aldrei verið meiri. Í júlí fóru þau í fyrsta sinn yfir 2.000 ma.kr. og hafa haldist í kringum þá tölu síðan. Það vekur athygli að innlán heimila hafa aukist í hverjum einasta mánuði frá sumrinu 2013 miðað við sama mánuð ári áður. Á sjö árum hafa þau meira en tvöfaldast, úr 921 ma.kr. í september 2019 í 2.010 ma.kr. nú, sem er langt umfram hækkun verðlags á sama tíma. Á síðustu tólf mánuðum hafa bæst við um 210 ma.kr., eða að jafnaði um 17,5 ma.kr. í hverjum mánuði, eins og sést á myndinni hér að neðan. 

Peningarnir fara á sparireikninga

Nánast allur vöxturinn skrifast á óbundna sparireikninga, þ.e. reikninga þar sem hægt er að taka peningana út hvenær sem er. Þeir skýra 10,3 prósentustig af 11,7% vexti innlána, eða nærri níu af hverjum tíu krónum sem bæst hafa við. Á óbundnum reikningum liggja nú 1.139 ma.kr., meira en helmingur allra innlána heimila. Verðtryggður sparnaður hefur líka aukist í krónum talið og skýrir 1,7 prósentustig af vextinum, um þrefalt meira en um mitt síðasta ár, en þar munar nær eingöngu um séreignarsparnað. Ef séreignin er undanskilin má rekja allan vöxt innlána heimila til óbundinna reikninga.

Á móti hafa bundnir reikningar misst aðdráttarafl sitt. Framlag þeirra til vaxtarins var 3,8 prósentustig í febrúar 2025 en er nú aðeins 0,3. Veltureikningar, þ.e. hefðbundnir launareikningar, hafa á sama tíma dregist saman. Myndin er því nokkuð skýr: heimilin halda minna fé á vaxtalitlum reikningum og færa það frekar þangað sem betri vextir bjóðast.

Innlánin vaxa jafnframt hraðar en tekjur heimilanna. Ef litið er á annan ársfjórðung, þar sem bæði liggja fyrir tölur um innlán og heimilistekjur, jukust ráðstöfunartekjur heimilanna um 7,3% frá fyrra ári, á meðan innlán þeirra jukust um 11,8% á tólf mánuðum til loka júní. Sama mynd blasti við í fyrra, þegar ráðstöfunartekjur jukust um 6,1% en innlánin um 9,4% yfir árið. Hluta skýringarinnar má rekja til vaxtanna sjálfra: með um 7,5% vöxtum stækkar innstæðan nánast um sama hlutfall á ári án þess að krónu sé bætt við. Þróunin kann að endurspegla að heimilin leggi stærri hluta tekna sinna til hliðar, en einnig að fé færist úr öðrum eignum yfir á bankareikninga. Sú mynd rímar við hægan vöxt kaupmáttar á mann og einkaneyslu. Kaupmáttur á mann jókst aðeins um 0,8% á öðrum ársfjórðungi og einkaneyslan hefur vaxið hægt það sem af er ári. 

Rétt er þó að taka einstökum mánuðum með fyrirvara. Í maí í fyrra nýttu mörg heimili sparifé sitt til að kaupa hlut ríkisins í Íslandsbanka og drógust innlán þeirra þá saman. Þegar sá samdráttur fellur út úr tólf mánaða samanburðinum mælist vöxturinn meiri en ella, og skýrir það hluta af því að ársvöxtur innlána tók stökk í sumar. Undirliggjandi myndin er þó sú sama: innlán heimila halda áfram að vaxa hratt.

Lítill hvati til að binda peningana 

Skýringin á þessari miklu aukningu innlána liggur að stórum hluta í vöxtunum. Undanfarið hafa vextir á helstu óbundnu sparireikningum bankanna verið á bilinu um 7,4–7,75% og á bundnum reikningum um 7,5–8%. Það er því lítill hvati til að binda peningana og fórna sveigjanleikanum þegar lítið sem ekkert fæst aukalega fyrir það.

Þetta var öðruvísi veturinn 2024–2025. Þá voru vextir á niðurleið og bundnir reikningar buðu betri kjör en óbundnir. Margir nýttu tækifærið og festu vextina áður en þeir lækkuðu frekar og framlag bundinna innlána náði hámarki á þeim tíma. Þegar vextir tóku að hækka á ný í ár hvarf sá ávinningur að mestu.

Mestu skiptir þó að það borgi sig að spara. Stýrivextir eru nú 8% og verðbólga mældist 5,9% í október, svo raunstýrivextir á þann mælikvarða eru um 2%. Vextir á óbundnum sparireikningum hafa fylgt stýrivöxtum nokkuð þétt og hafa undanfarið verið um 7,5%. Miðað við núverandi verðbólgu samsvarar það jákvæðum raunvöxtum upp á um 1,5%. Það er einmitt hluti af miðlun hárra stýrivaxta: sparnaður verður álitlegri en ella á meðan lántaka og neysla verða dýrari. Þannig draga háir vextir úr eftirspurn og þar með verðbólguþrýstingi. Þróun innlána er í góðu samræmi við þessa virkni peningastefnunnar.

Hvað segir þetta um heimilin? 

Aukinn sparnaður rímar vel við þá mynd sem við höfum séð af heimilunum undanfarið. Þau hafa haldið að sér höndum: einkaneysla hefur vaxið hægt, væntingar verið daprar stóran hluta ársins og atvinnuleysi farið vaxandi. Slík óvissa getur bæði aukið vilja heimila til að spara og hvatt þau til að byggja upp varasjóð. 

Staða heimilanna virðist jafnframt almennt sterk. Þau eiga myndarlegan sparnað, skuldir eru lágar í sögulegu samhengi og vanskil lítil. Þar leynist þó mikill munur milli heimila enda dreifist sparnaðurinn ekki jafnt. Uppsafnaður sparnaður gæti engu að síður reynst mikilvægur stuðningur við heimilin ef kólnunin í hagkerfinu dregst á langinn. 

Sparnaðurinn gæti leitað annað þegar vextir lækka 

Útlit er fyrir að raunvextir verði áfram allháir á komandi fjórðungum í ljósi áherslu Seðlabankans á að kveða niður þrálátan verðbólgudrauginn. Því má búast við að innlán heimila haldi áfram að vaxa á næstunni, þótt líklegt sé að smám saman hægi á vextinum. 

Þegar vextir lækka verður minna upp úr því að hafa að geyma peninga á bankareikningum og má því búast við að hægi enn frekar á vexti innlána. Þá vaknar sú spurning hvert sparnaðurinn leiti og hvort hluti þeirra rúmlega 200 ma.kr. sem bæst hafa við á bankareikningum heimilanna á undanfarið ár finni sér annan farveg, í hlutabréfum, skuldabréfum eða fasteignum. Slík tilfærsla gæti aukið eftirspurn eftir öðrum eignum og þannig stutt við eignaverð þegar líður á næsta ár. Líklegt er jafnframt að bundnir reikningar verði aftur álitlegri þegar vaxtalækkunarferlið hefst, líkt og veturinn 2024–2025 þegar fólk gat tryggt sér háa vexti áður en þeir lækkuðu. Uppsafnaður sparnaður gæti jafnframt skapað svigrúm fyrir einkaneysluna til að taka hraðar við sér þegar vextir lækka og óvissan minnkar.

Höf­und­ur


Berg­þóra Bald­urs­dótt­ir

Hagfræðingur í Greiningu


Hafa samband