Tveggja hraða fyrirtækjageiri síðsumars

Velta í viðskiptahagkerfinu jókst um 1,3% að raunvirði síðsumars frá sama tíma í fyrra. Vöxturinn er að stórum hluta borinn uppi af álframleiðslu og gagnaverum á meðan hægagangur ríkir í byggingarstarfsemi og samdráttur í sjávarútvegi. Tölurnar benda til hægs vaxtar fremur en almenns samdráttar og eru í takti við nýlega þjóðhagsspá okkar.


Hagstofan birti nýlega tölur um veltu samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum fyrir júlí og ágúst. Velta í viðskiptahagkerfinu, þ.e. án fjármálastarfsemi og lyfjaframleiðslu, nam 1.335 ma.kr. á tímabilinu og jókst um 6,8% frá sama tíma í fyrra. Þar sem vísitala neysluverðs hækkaði um 5,4% á sama tíma nemur raunvöxturinn um 1,3%. Fyrstu átta mánuði ársins jókst veltan um 0,8% að raunvirði og sama hlutfall fæst sé litið til síðustu tólf mánaða. Vöxturinn er vissulega hægur á þennan kvarða, en leitnin hefur þó heldur verið upp á við á árinu eftir raunsamdrátt lengst af í fyrra.

Undir yfirborðinu er myndin hins vegar býsna mislit. Velta jókst umfram verðbólgu í rúmlega helmingi atvinnugreina samkvæmt Hagstofunni. Mest munar um álframleiðslu og upplýsingatækni tengda gagnaverum, en byggingarstarfsemi, heildverslun og sjávarútvegur drógu meðaltalið niður.

Á brattann að sækja í byggingargeiranum

Velta í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð nam 121,5 ma.kr. í júlí og ágúst og jókst einungis um 2,7% að nafnvirði frá fyrra ári. Að raunvirði jafngildir það 2,6% samdrætti sé miðað við vísitölu neysluverðs, en sé veltan staðvirt með byggingarvísitölu stóð veltan nánast í stað. Mestur er hægagangurinn í byggingu húsnæðis og þróun byggingarverkefna, þar sem velta var nánast óbreytt í krónum talið og hefur raunar skroppið lítillega saman að raunvirði yfir síðustu tólf mánuði. Á móti jókst velta í mannvirkjagerð um 12%, sem trúlega endurspeglar m.a. framkvæmdir við orkuinnviði. Af öðrum vísbendingum má nefna að velta byggingarvöruverslana dróst saman um 3% og velta arkitektastofa um tæp 10% að nafnvirði, sem gefur vísbendingu um samdráttartíð í greininni næsta kastið.

Þetta rímar vel við nýlega greiningu HMS, sem sýnir að íbúðum í byggingu hefur fækkað og nýframkvæmdir eru í sögulegu lágmarki. Jafnframt hefur óseldum fullbúnum íbúðum fjölgað og HMS hefur lækkað spá sína um framboð næstu ára.

Seðlabankinn hefur einnig vakið athygli á stöðu greinarinnar. Í Fjármálastöðugleika sem kom út í september kemur fram að langur birgðatími og háir vextir reyni á fjárhag byggingarfyrirtækja. Útlán viðskiptabankanna til geirans hafi vaxið hratt og vanskil aukist, þótt fjárhagserfiðleikar séu ekki útbreiddir enn sem komið er. Birgðatími nýbygginga á höfuðborgarsvæðinu var tæplega 19 mánuðir í júlí. Við spáum 6,4% samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár en hægfara viðsnúningi á næsta ári þegar vextir taka að lækka.

Ferðaþjónustan fær meira í kassann

Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu nam 252 ma.kr. og jókst um 7,3% frá fyrra ári. Að raunvirði nemur vöxturinn 1,7% og er það fyrsta raunaukningin í greininni í rúmt ár. Fyrstu átta mánuði ársins dróst raunveltan hins vegar saman um 4,7%. Velta gististaða jókst um 10% þrátt fyrir litlar breytingar á fjölda gistinátta í júlí og ágúst, auk þess sem velta í farþegaflutningum á landi jókst um tæpan fjórðung. Hjá ferðaskrifstofum dróst velta hins vegar saman um tæp 2%.

Athygli vekur að þetta gerist án fjölgunar ferðamanna. Brottfarir erlendra farþega um Keflavíkurflugvöll yfir háannarmánuðina voru lítillega færri en í fyrra og í ágúst fjölgaði þeim aðeins um 0,4%. Hver ferðamaður virðist því að jafnaði hafa dvalið heldur lengur og eytt meiru hér á landi en fyrir ári, sem m.a. má sjá í ríflega 7% vexti í veltu erlendra greiðslukorta á föstu gengi yfir sumarmánuðina. Hátt hlutfall bandarískra ferðamanna á þar trúlega hlut að máli. Við spáum 0,6% fækkun ferðamanna í ár og hægum vexti árin 2027–2028.

Gagnaverin taka flugið

Velta í tækni- og hugverkaiðnaði (án lyfjaframleiðslu) nam 111 ma.kr. og jókst um 11,5% að nafnvirði, eða 5,7% að raunvirði. Litlar breytingar urðu hins vegar í flestum undirgreinum geirans. Velta í hugbúnaðargerð jókst um 1% og samdráttur var í meðal- og hátækniframleiðslu. Vöxturinn var nær allur í upplýsingatækni tengdri gagnaverum. Velta í upplýsingaþjónustu, sem nær m.a. yfir gagnavinnslu og hýsingu, nærri þrefaldaðist milli ára. Veltutölur í geiranum sveiflast talsvert milli tímabila en undirliggjandi vöxtur er verulegur. Síðustu tólf mánuði nam veltan til að mynda 87 ma.kr. samanborið við 32 ma.kr. árið á undan en rétt er að halda til haga að samanburðartímabilið var óvenju rýrt í roðinu hvað tekjur geirans varðaði.

Sama mynd birtist í tölum um utanríkisviðskipti. Útflutningstekjur af fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu námu 129 ma.kr. frá miðju ári 2025 fram á mitt þetta ár og jukust um 65% frá 12 mánuðunum þar á undan. Gagnaverin eru þannig orðin næststærsti liður þjónustuútflutnings á eftir ferðaþjónustu. Uppbyggingin hefur jafnframt lyft fjárfestingu atvinnuvega líkt og við fórum yfir nýverið, en við væntum kaflaskila í þeim efnum á næsta ári þegar hægir á uppbyggingu gagnavera.

Álverð lyftir veltu álvera

Velta í málmframleiðslu nam rúmum 76 ma.kr. í júlí og ágúst og jókst um 41% frá fyrra ári. Þar vega álverin langþyngst. Vöxturinn skýrist þó ekki af meiri framleiðslu, enda var útflutt magn aðeins örlítið meira en fyrir ári samkvæmt Hagstofunni. Álverð á heimsmarkaði var hins vegar að jafnaði um 23% hærra í júlí og ágúst en á sama tíma í fyrra og gengi krónu lítið breytt. Hærra verð skýrir því drjúgan hluta aukningarinnar, en tímasetning afhendinga og samsetning afurða kunna einnig að hafa áhrif.

Sé litið yfir síðustu tólf mánuði hefur velta álvera þó dregist saman að raunvirði, enda setti alvarleg bilun í einu álveranna þriggja síðasta haust mark sitt á framleiðsluna fram eftir ári. Álverð hefur jafnframt gefið nokkuð eftir síðustu vikur. Við spáum 6% samdrætti í útflutningi álafurða að magni til í ár en kröftugum vexti á næsta ári, enda er framleiðslan komin á fullan skrið á ný.

Tekjuvöxtur í útflutningi

Í sjávarútvegi dróst velta saman um 6% að nafnvirði í júlí og ágúst. Hagstofan tekur þó fram að ekki hafi öll gögn borist frá fyrirtækjum í greininni og samdrátturinn því líklega ofmetinn að sinni. Fyrstu átta mánuði ársins jókst raunvelta sjávarútvegs um 9,5%, ekki síst vegna allgóðrar loðnuvertíðar og hás verðs á sjávarafurðum. Þá jókst velta í fiskeldi um 11% á tímabilinu.

Samanlagt jókst velta í ferðaþjónustu, sjávarútvegi, fiskeldi, álframleiðslu og tækni- og hugverkaiðnaði um tæp 10% að nafnvirði í júlí og ágúst, eða um ríflega 4% að raunvirði. Hafa ber í huga að verðhækkanir á útflutningsafurðum lita þá mynd. Í heild staðfesta tölurnar þá mynd sem dregin er upp í þjóðhagsspá okkar: hefðbundnar útflutningsgreinar troða marvaðann að magni til á meðan nýjar stoðir á borð við gagnaver og landeldi bera vöxtinn uppi. Við spáum 2,0% útflutningsvexti í ár og 3,4% á næsta ári.

Endurspegla tölurnar svartsýni stjórnenda?

Stjórnendur stærstu fyrirtækja landsins eru svartsýnir um þessar mundir. Í könnun Gallup fyrir Seðlabankann og Samtök atvinnulífsins í september töldu þeir almennt aðstæður í efnahagslífinu slæmar fjórða ársfjórðunginn í röð. Væntingar þeirra til næstu sex mánaða hafa ekki verið lægri frá árinu 2018. Þá fjölgar fyrirtækjum sem sjá fram á fækkun starfsfólks.

VSK-tölurnar gefa hins vegar ekki til kynna almennan samdrátt í umsvifum fyrirtækja. Hægur raunvöxtur er í viðskiptahagkerfinu í heild, en greinilegur munur er milli greina sem sinna einkum innlendri eftirspurn og útflutningsgreina. Byggingarstarfsemi og heildverslun eiga á brattann að sækja og raunvöxtur í smásöluverslun er hægur á meðan útflutningsgreinar, einkum þær nýrri, sækja í sig veðrið. Svartsýnin endurspeglar því trúlega ekki síður áhyggjur af því sem fram undan er, s.s. háum vöxtum, minnkandi umsvifum á íbúðamarkaði og kólnandi innlendri eftirspurn, en samdrátt sem þegar hefur átt sér stað.

Þetta er í góðu samræmi við nýjustu þjóðhagsreikninga. Samkvæmt þeim jókst landsframleiðsla um 1,3% á fyrri helmingi þessa árs frá sama tíma í fyrra. Í þjóðhagsspá okkar frá september spáum við 1,2% hagvexti í ár, svipuðum og í fyrra, þar sem utanríkisviðskipti styðja við vöxtinn á meðan einkaneysla vex hægt og fjármunamyndun stendur í stað. Hagvöxtur glæðist svo í 1,8% á næsta ári og 2,3% árið 2028 eftir því sem vextir lækka og innlend eftirspurn tekur við sér. Því ber þó að halda til haga að VSK-velta er mæld að nafnvirði og staðvirðing með vísitölu neysluverðs er aðeins nálgun, ekki síst í greinum þar sem verðþróun er allt önnur en almenn verðbólga.

Höfundur


Jón Bjarki Bentsson

Aðalhagfræðingur


Hafa samband