Spáum óbreyttum stýrivöxtum 7. október

Við spáum óbreyttum stýrivöxtum, 8,0%, í næstu viku. Háir raunvextir, fremur stöðugar verðbólguvæntingar og vaxandi slaki í hagkerfinu ættu að vega þyngra en þrálát verðbólga. Við teljum jafnframt að vaxtalækkunarferli hefjist á vordögum 2027.


Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi stýrivöxtum óbreyttum í 8,0% við vaxtaákvörðunina næstkomandi miðvikudag, 7. október. Að okkar mati hefur nefndin nú gild rök fyrir því að bíða átekta og meta áhrif þeirra vaxtahækkana sem ráðist var í fyrr á árinu fremur en að herða taumhald peningastefnunnar frekar.

Þrátt fyrir að verðbólga sé enn langt yfir markmiði og horfur til skemmri tíma hafi versnað nokkuð teljum við að nefndin muni leggja meiri áherslu á að undirliggjandi verðbólguþrýstingur hafi ekki aukist að ráði á undanförnum mánuðum. Á sama tíma hafa raunvextir haldist háir og vísbendingar um hægari vöxt innlendrar eftirspurnar orðið skýrari. Það ætti að nægja til að réttlæta óbreytta vexti að sinni.

Peningastefnunefnd hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentur á síðasta fundi sínum í ágúst og var það þriðja vaxtahækkun ársins. Einn nefndarmaður, Tómas Brynjólfsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, kaus þó gegn vaxtahækkuninni og vildi halda vöxtum óbreyttum. Í yfirlýsingu nefndarinnar í ágúst kom fram mun mildari tónn en eftir vaxtahækkanirnar í mars og maí og var hún nánast skólabókardæmi um það sem oft er kallað „dovish hike“ eða dúnmjúk vaxtahækkun. Þar var áfram lögð áhersla á að verðbólga væri þrálát og að verðbólguvæntingar væru enn of háar. Jafnframt var bent á að undirliggjandi verðbólga væri tekin að hjaðna á suma mælikvarða og að merki sæjust um að slaki væri að aukast í hagkerfinu. Setning um að nefndin væri reiðubúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar, sem verið hafði í framsýnni leiðsögn í mars og maí, var auk heldur hvergi sjáanleg í yfirlýsingu peningastefnunefndar í ágúst. Við túlkuðum skilaboð nefndarinnar sem allskýra vísbendingu um að vaxtahækkunarferlinu væri lokið nema verðbólguþróun kæmi verulega á óvart til verri vegar. Þar ber að hafa í huga að verðbólguspá Seðlabankans sem birt var samhliða vaxtaákvörðuninni hljóðaði upp á tæplega 6% verðbólgu fram til áramóta.

Aðhaldið hefur skilað sér í raunhagkerfið..

Nýjustu hagvísar styðja við þá skoðun nefndarinnar í ágúst að slaki fari vaxandi í þjóðarbúinu. Vinnumarkaður sýnir vaxandi merki um slaka, dregið hefur úr krafti einkaneyslu og ýmsar vísbendingar benda til hóflegri umsvifa en áður. Kortavelta heimila hefur þróast með dempaðri hætti en á síðustu árum, hægt hefur á útlánavexti og húsnæðismarkaður sýnir minni spennu en áður. Þá virðist hagvöxtur á þessu ári og hinum tveimur næstu ætla að verða hóflegri en var að jafnaði árin eftir faraldurinn, eins og farið er yfir í nýbirtri þjóðhagsspá okkar. Samkvæmt henni er útlit fyrir hægan vöxt neyslu, tímabundinn samdrátt í fjárfestingu og aukið atvinnuleysi á komandi fjórðungum.

Miðlun peningastefnunnar yfir í raunhagkerfið hefur verið skýr að okkar mati. Það sem enn vantar nokkuð upp á er seinna skref miðlunarinnar, frá hægari efnahagsumsvifum til hjaðnandi verðbólgu og lækkandi verðbólguvæntinga. Vonandi stendur það til bóta á næstunni.

..en ekki að fullu í verðbólguhorfur

Verðbólga hefur reynst talsvert þrálátari þetta árið en vonir stóðu til. Verðhækkanir á húsnæðismarkaði, innfluttum vörum og ýmsum þjónustuliðum hafa haldið ársverðbólgu yfir þeim mörkum sem samrýmast verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Skammtímahorfur hafa jafnframt versnað nokkuð og líklegt er að verðbólga verði áfram mikil næstu misseri.

Að okkar mati mun peningastefnunefnd þó horfa fremur til þess hvert verðbólgan stefnir á næstu árum en til skammtímasveiflna einstakra mælinga. Í nýjustu þjóðhagsspá Greiningar gerum við ráð fyrir að verðbólga hjaðni smám saman þegar líður á spátímann, studd af áframhaldandi aðhaldi peningastefnunnar, hægari vexti innlendrar eftirspurnar og raunlækkun verðs á húsnæðismarkaði næsta kastið. Þótt ferlið verði hægara en áður var talið teljum við engu að síður að verðbólga verði á niðurleið þegar horft er til lengri tíma.

Verðbólguvæntingar til lengri tíma hafa verið fremur stöðugar undanfarið þrátt fyrir versnandi skammtíma verðbólguhorfur. Langtímavæntingar heimila, fyrirtækja og markaðsaðila eru enn talsvert yfir markmiði Seðlabankans en hafa almennt ekki hækkað þrátt fyrir versnandi verðbólguhorfur fyrir allra næstu fjórðunga. Sama má segja um verðbólguálag á skuldabréfamarkaði sem hefur haldist tiltölulega stöðugt undanfarna mánuði. Þótt enn sé talsvert í land með að væntingar samræmist að fullu verðbólgumarkmiðinu eru litlar vísbendingar um að trúin á verðbólgumarkmiðið sé að þverra þótt vissulega sé áhyggjuefni sem fyrr hversu háar væntingarnar eru.

Raunvextir eru enn háir

Raunvextir eru jafnframt enn háir. Miðað við bæði mælda verðbólgu og verðbólguvæntingar eru raunstýrivextir meðal þeirra hæstu sem sést hafa um langt skeið. Sama á við um lengri raunvexti á skuldabréfamarkaði. Þetta bendir til þess að peningastefnan sé áfram verulega aðhaldssöm og að áhrif hennar á eftirspurn og verðbólgu eigi eftir að koma fram að fullu á næstu fjórðungum. Að okkar mati mun nefndin líta svo á að núverandi vaxtastig sé nægilega hátt til að styðja við áframhaldandi hjöðnun verðbólgu án frekari hækkana.

Vaxtalækkun á vordögum 2027

Eftir samfellt vaxtalækkunarferli frá haustdögum 2024 fram til ársloka 2025 neyddist Seðlabankinn til þess að snúa við blaðinu og hefja vaxtahækkunarferli að nýju í mars síðastliðinn. Það sem af er ári hafa stýrivextir hækkað um 0,75 prósentur og eru nú 8,0%.

Tónn peningastefnunefndar var hins vegar töluvert mildari í ágúst en raunin var fyrr á árinu og gaf til kynna að vaxtahækkunarferlinu væri lokið þrátt fyrir dökkar skammtíma verðbólguhorfur.

Við teljum að stýrivextir verði ekki hækkaðir frekar nema þá aðeins að verðbólga verði enn meiri en við spáum á komandi fjórðungum. Stýrivextir verða því væntanlega óbreyttir fram á næsta vor en þá gæti hafist hægfara vaxtalækkunarferli sem standa mun fram á árið 2028. Því vaxtalækkunarferli gæti lokið með stýrivextina í kring um 6,0% á fyrri hluta þess árs ef efnahags- og verðbólguþróun verður í takti við spár okkar.

Langtímavextir eru enn háir og hafa þokast upp það sem af er ári. Miðað við vaxtaferla ríkisbréfa eru 10 ára óverðtryggðir grunnvextir nú u.þ.b. 7,1% og samsvarandi verðtryggðir vextir 3,0%. Raunvaxtastig í landinu er því enn allhátt á flestalla mælikvarða.

Við áætlum að langtíma nafnvextir gætu lækkað í 6,0% á spátímanum og raunvextir í 2,5%. Langtíma verðbólguálag yrði samkvæmt því 3,5% samanborið við tæplega 4,0% álag um þessar mundir. Þar ber þó að hafa í huga að hluti þess er óvissuálag og langtíma verðbólguvæntingar á markaði eru því trúlega lægri.

Hins vegar teljum við jafnvægisstig raunvaxta í hagkerfinu á næstunni vera hærra en flestir væntu fyrir nokkrum misserum. Er það í takti við alþjóðlega þróun en skýrist einnig af þrálátari verðbólgu og meiri seiglu í hagkerfinu en útlit var fyrir. Framangreind spá fyrir 2028 eru því nálægt jafnvægisvöxtum að okkar mati.

Höfundur


Jón Bjarki Bentsson

Aðalhagfræðingur


Hafa samband

Lagalegur fyrirvari

Skýrsla þessi er tekin saman af Greiningu Íslandsbanka hf. (Íslandsbanki).

Upplýsingar í skýrslu þessari eru upprunnar frá innlendum og erlendum upplýsinga- og fréttaveitum, sem taldar eru áreiðanlegar, ásamt opinberum upplýsingum, eigin úrvinnslu Greiningar og mati á hverjum tíma. Upplýsingarnar hafa ekki verið kannaðar sjálfstætt af Íslandsbanka og ábyrgist bankinn ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra. Skoðanir höfunda geta breyst án fyrirvara og ber Íslandsbanka ekki skylda til að uppfæra, lagfæra eða breyta skýrslunni við breyttar forsendur.

Skýrslan er einungis birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum. Íslandsbanki og starfsmenn bankans bera ekki ábyrgð á viðskiptum sem kunna að vera gerð á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma í skýrslunni. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðleggingar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingarkosti sem í boði eru. Fjárfestingum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna alþjóðlegra fjárfestinga og gengisflökts gjaldmiðla. Fjárfestingamarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta er mismunandi. Bent skal á að árangur í fortíð er ekki trygging um árangur í framtíð.

Skýrslur og aðrar upplýsingar sem berast frá Íslandsbanka eru einungis ætlaðar til einkanota. Hvorki má afrita efnið, vitna í það né dreifa því, í heild eða að hluta, án skriflegs leyfis frá Íslandsbanka.

Skýrsla þessi er stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í henni sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem hún fjallar um.

Eftirlitsaðili: Fjármálaeftirlitið (www.fme.is).

BANDARÍKIN

Skýrslu þessari eða afritum hennar má ekki dreifa í Bandaríkjunum eða til viðtakenda sem eru bandarískir ríkisborgarar í andstöðu við takmarkanir sem kveðið er á um í bandarískum lögum. Dreifing skýrslunnar í Bandaríkjunum kynni að teljast brot á þeim lögum.

KANADA

Upplýsingarnar í skýrslu þessari eru ekki ætlaðar til dreifingar eða útbreiðslu með neinum hætti í Kanada og því ber ekki að líta á þær sem fjármálaráðgjöf eða ráðleggingu um fjárfestingar í skilningi kanadískra verðbréfalaga.

ÖNNUR LÖND

Lög og reglugerðir í öðrum löndum kunna einnig að takmarka dreifingu skýrslu þessarar.