Mikil óvissa ríkir um verðbólguhorfur á næstunni vegna ástandsins við Persaflóa. Vegna þess að erfitt er að spá fyrir um verðbólguhorfur á næstunni höfum við sett fram sviðsmyndir, sem ráðast af ástandinu út í heimi.
Óvissan endurspeglast einkum í horfum fyrir eldsneytisverð, flutningskostnað og afleidd áhrif þeirra á verðlag innfluttra vara hér á landi. Sviðsmyndirnar eru þrjár; grunnsviðsmynd, sem byggir á verðbólguspá okkar sem birtist í síðustu viku, auk jákvæðrar og neikvæðrar sviðsmyndar.
Grunnsviðsmynd
Í grunnsviðsmyndinni, sem byggir á verðbólguspá okkar, er gert ráð fyrir að tveggja vikna vopnahléið frá 8.apríl reynist ekki nægjanlegt til að tryggja eðlilega umferð um Hormússund á næstunni. Siglingaumferð verður því áfram takmörkuð og óvissa áfram mikil. Eðlilegt ástand næst ekki fyrr en eftir 10-14 vikur. Eldsneytisverð á heimsmarkaði helst því hátt fram á sumar en fer í kjölfarið lækkandi á ný.
Hér á landi birtast áhrifin einkum í hærra eldsneytis- og flugverði auk hækkandi flutningskostnaðar, sem smitast að hluta út í verðlag innfluttra vara auk þess sem skortur á ýmsum lykilhráefnum til iðnaðarframleiðslu þrýstir upp vöruverði. Þrýstingurinn dvínar undir lok sumars eftir því sem aðfangakeðjur jafna sig.
Jákvæð sviðsmynd
Í jákvæðri sviðsmynd opnast Hormússund á ný á næstunni og siglingaleiðir færast smám saman í fyrra horf. Truflanir á framboði reynast þá skammlífar og eðlilegt ástand næst innan 6-10 vikna. Áhrif á verðlag takmarkast við næstu mánuði og endurspeglast helst í tímabundnum hækkunum á eldsneyti, flugverði og flutningskostnaði. Hækkanirnar eru þar að auki hóflegri en í grunnspánni. Þetta er í raun sú sviðsmynd sem vonast var eftir þegar stríðið tók að dragast á langinn og vopnahlé var tilkynnt.
Neikvæð sviðsmynd
Í neikvæðu sviðsmyndinni er gert ráð fyrir langvinnari truflunum, svipuðum þeim sem fylgdu í kjölfar Úkraínustríðsins. Eldsneytisverð helst hátt í að minnsta kosti sex mánuði og kostnaðarhækkanir berast í auknum mæli yfir í flutningskostnað og verð innfluttra vara, þar á meðal matvöru. Sömu sögu má segja af áhrifum af minna framboði á hráefnum frá svæðinu til iðnaðarframleiðslu. Áhrifin dreifast smám saman yfir í fleiri liði vísitölu neysluverðs og birtast í auknum innfluttum verðbólguþrýstingi á 6-12 mánaða tímabili.

