Óbreyttir stýrivextir og vaxtahækkunarferli líklega lokið

Seðlabankinn hélt stýrivöxtum óbreyttum í 8,0% í morgun. Peningastefnunefnd bankans virðist nú hallast að biðstöðu fram yfir áramót fremur en frekari hækkunum þótt verðbólga sé þrálát. Spá okkar er óbreyttir vextir fram í maí 2027.


Seðlabankinn tilkynnti í morgun þá ákvörðun peningastefnunefndar bankans að halda stýrivöxtum bankans, þ.e. vöxtum á 7 daga bundnum innlánum, óbreyttum í 8,0%. Ákvörðunin var í samræmi við allar birtar spár og almennar væntingar á markaði.

Nefndin var á einu máli um ákvörðunina að þessu sinni en til upprifjunar vildi Tómas Brynjólfsson halda vöxtum óbreyttum í ágúst meðan aðrir nefndarmenn studdu 0,25 prósenta hækkun. Raunar mátti skilja af orðum Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra á kynningarfundi eftir ákvörðunina að aðrir möguleikar en óbreyttir vextir hefðu lítið verið ræddir að þessu sinni og mikill samhljómur hefði verið meðal nefndarmanna um ákvörðunina.

Það helsta úr yfirlýsingu peningastefnunefndar:

  • Verðbólga hefur aukist enn frekar frá því í sumar eins og búist var við. Hún mælist nú 5,9% og hefur ekki verið meiri í tvö ár.
  • Aukning mældrar verðbólgu hefur fyrst og fremst litast af áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum og hækkun opinberra gjalda.
  • Undirliggjandi verðbólga hefur hins vegar haldist tiltölulega stöðug í liðlega 4% um nokkra hríð.
  • Þótt greinilega sé tekið að hægja á efnahagsumsvifum er mæld og undirliggjandi verðbólga enn of mikil og verðbólguvæntingar of háar.
  • Flest bendir þó til þess að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári en óvissa er töluverð, ekki síst hvað varðar þróun alþjóðlegra efnahagsmála og framvindu á innlendum vinnumarkaði.

Skýr tengsl milli launa og verðbólgu undanfarinn áratug

Ekki var um nýja útgáfu Peningamála með tilheyrandi hagspá að ræða samhliða vaxtaákvörðuninni að þessu sinni. Hins vegar fór varaseðlabankastjóri peningastefnu, Þórarinn G. Pétursson, yfir nokkra efnahagslega þætti sem peningastefnunefndin hafði horft til í þetta skiptið. Þótti okkur það gagnleg viðbót við fundinn, sér í lagi í ljósi viðkvæmrar stöðu á vinnumarkaði þessa dagana.

Meðal annars rifjaði Þórarinn upp samanburð sem Seðlabankinn hefur áður horft til á þróun bæði nafnlauna og raunlauna á Íslandi og á hinum Norðurlöndunum. Er þar um nokkuð sláandi mun að ræða þar sem Ísland sker sig úr með hversu miklu hraðar laun hafa hækkað hér á landi en annars staðar á Norðurlöndum, hvort sem leiðrétt er fyrir verðlagsþróun eða ekki. Þannig hefðu laun á Íslandi fjórfaldast undanfarna tvo áratugi en tvöfaldast að jafnaði á hinum Norðurlöndunum. Svipaða sögu mætti segja af raunlaunum þar sem hækkunin á þessu tímabili væri miklu meiri en annars staðar á Norðurlöndum. Þá birti hann sýnishorn úr niðurstöðum óbirtrar rannsóknar á tengslum launa og verðbólgu sem sýnir að tölfræðilega marktæk og umtalsverð orsakatengsl frá launaþróun yfir til verðbólgu eru mun skýrari undanfarinn áratug en áður virðist hafa verið raunin. Sér í lagi eru áhrif launahækkana á verðlag sterk þegar verðbólga er mikil samkvæmt rannsókninni.

Seðlabankastjóri tók í svipaðan streng þegar talið barst að því sem kalla má „óbeina verðtryggingu“, sem sagt það hversu útbreitt er hérlendis að verð og gjöld af ýmsu tagi séu nánast sjálfvirkt hækkuð í takti við liðna verðbólgu. Benti hann þar á að það gæti ekki heldur verið lögmál að laun héldu ávallt í við verðlag hér á landi frekar en annars staðar.

Þá benti varaseðlabankastjóri á að undirliggjandi verðbólga virtist þrátt fyrir allt ekki vera að aukast og á einhverja mælikvarða væri hún jafnvel tekin að hjaðna. Varaði hann þó við því að túlka þær tölur of sterkt að sinni.

Fögnuðu bankastjórarnir nýlegum fréttum af samkomulagi Breiðfylkingarinnar svokölluðu við SA um að kjarasamningar héldu út næsta ár með lítilsháttar breytingum sem og útspili ríkisstjórnar og aðila í smásöluverslun og tengdum greinum um að stemma stigu við hækkandi verðlagi.

Minni fögnuður var meðal Seðlabankamanna með nýlegt frumvarp um leigubremsu sem þeir töldu að gæti orðið til þess að minnka framboð leiguíbúða og valda öðrum neikvæðum áhrifum til lengri tíma, líkt og ýmsar rannsóknir á áhrifum svipaðra laga hafa sýnt fram á.

Óbreyttir stýrivextir fram á næsta vor?

Framsýn leiðsögn nefndarinnar slær fremur mjúkan tón líkt og í ágúst. Hún hljóðar svo:

Í ljósi þessarar óvissu og hversu þrálát verðbólga og verðbólguvæntingar hafa verið telur peningastefnunefnd rétt að viðhalda þéttu peningalegu taumhaldi. Mótun peningastefnunnar mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Til samanburðar var framsýna leiðsögnin í ágúst svohljóðandi:

Í ljósi mikillar verðbólgu og hárra verðbólguvæntinga telur peningastefnunefnd rétt að hækka vexti bankans til að tryggja nægjanlegt peningalegt aðhald. Mótun peningastefnunnar mun þó sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Framsýna leiðsögnin er að okkar mati all sterk vísbending um að ekki standi til að hækka vexti í nóvember nema þá að verðbólguhorfur versni enn meira og verðbólguvæntingar hækki. Til upprifjunar spáði Seðlabankinn í ágúst 5,6% verðbólgu á 3. fjórðungi og 5,7% á lokafjórðungi ársins. Peningastefnunefndin er því fremur að horfa til þess hvort, og þá hversu hratt, verðbólgutakturinn hjaðnar á upphafsmánuðum næsta árs varðandi næstu skref. Í ágúst hljóðaði spá Seðlabankans upp á talsvert hraða hjöðnun verðbólgu árið 2027, úr 4,5% á upphafsfjórðungi ársins niður í 3,0% á lokafjórðungi þess. Við erum sammála bankanum um hver leitni verðbólgunnar verður á komandi ári en nokkuð svartsýnni á hraða hjöðnunarinnar. Gerum við ráð fyrir því að verðbólga mælist um 4% undir árslok 2027.

Stýrivaxtaspáin úr nýlegri þjóðhagsspá okkar er því enn í góðu gildi eftir vaxtaákvörðunina. Hún hljóðar upp á óbreytta stýrivexti út veturinn og vaxtalækkunarferli frá maí 2027 fram á mitt ár 2028 sem lýkur með stýrivexti í grennd við 6%.

Höfundur


Jón Bjarki Bentsson

Aðalhagfræðingur


Hafa samband