Með kerfinu er hægt að veita rafræn umboð á bankareikninga, kreditkort og ýmsar aðrar aðgangsheimildir, auk þess að fá skýra yfirsýn yfir veitt og móttekin umboð.
Umboðin eru undirrituð rafrænt með rafrænum skilríkjum eða auðkennisappi, sem eykur öryggi og einfaldar umsýslu. Viðskiptavinir geta á sama stað veitt, skoðað, endurnýjað og afturkallað umboð eftir þörfum og þannig haft betri stjórn á eigin fjármálum.
Nýja lausnin er liður í áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu bankans og miðar að því að einfalda ferla og bæta notendaupplifun. Ekki er verið að breyta reglum um umboð heldur bæta aðgengi, yfirsýn og framkvæmd umboðsveitinga.
Hvernig veitir þú umboð?
- Skráðu þig inn í netbankann með rafrænum skilríkjum.
- Veldu Umboð undir Öryggi í valmyndinni.
- Sláðu inn kennitölu þess sem á að fá umboðið (umboðshafa) og veldu tegund umboðs.
- Veldu aðgerðir sem umboðshafi má framkvæma samkvæmt umboðinu.
- Staðfestu með rafrænum skilríkjum.
