Umboð

Veittu öðrum öruggan og einfaldan aðgang að þínum fjármálum.

Hvað er umboð?


  • Umboð nefnist það þegar einstaklingi (umboðshafa) er veitt heimild til að koma fram fyrir hönd annars einstaklings (umboðsveitanda) og gera löggerninga í nafni umboðsveitanda.
  • Umboðshafi hjá Íslandsbanka hefur heimild til að nálgast fjárhagslegar upplýsingar og framkvæma aðgerðir byggðar á þeim heimildum sem koma fram í umboðinu. 
  • Umboðsveitandi ber ábyrgð á því að fella heimildirnar niður eða breyta þeim þegar þörf er á. 
  • Allt sem umboðshafi gerir innan ramma umboðsins telst vera gert af umboðsveitandanum sjálfum. Hins vegar heimilar umboðið umboðshafa ekki að breyta leyninúmerum, loka reikningum eða eyðileggja þá.

Spurt og svarað