Krónan styrkist þrátt fyrir viðskiptahalla

Krónan hefur styrkst undanfarið þrátt fyrir umtalsverð gjaldeyriskaup Seðlabankans, lífeyrissjóða og viðvarandi viðskiptahalla. Útlit er fyrir hægfara veikingu krónunnar á næstu árum.


Eftir býsna stöðugt gengi krónu 2023-2024 styrktist krónan lítillega á síðasta ári. Það sem af er þessu ári hefur hún svo sótt enn frekar í sig veðrið. Þannig var meðalgengi krónu í ágúst ríflega 3% sterkara en í desember 2025 miðað við gengisvísitölu Seðlabankans.

Í september hljóp svo meira líf í tuskurnar á gjaldeyrismarkaði. Frá byrjun septembermánaðar fram til föstudagsins 2. október hefur gengi krónu styrkst um tæp 2% miðað við gengisvísitölu en um 2,6% gagnvart evru, enda hefur evran almennt gefið eftir gagnvart helstu gjaldmiðlum síðustu vikur. Hefur gengi krónu gagnvart evru ekki verið hærra síðan um mitt ár 2022. Er okkar skoðun sú að styrkingin undanfarnar vikur sé hugsanlega full mikið af því góða þótt seigla útflutningsgreina gagnvart háu raungengi krónu hafi undanfarið reynst meiri en við þorðum að vona. Þar hjálpar hagstæð verðþróun á ýmsum lykil útflutningsvörum, einkum fiski og áli, talsvert til.

Seðlabankinn safnar gjaldeyri í sarpinn

Styrking krónu hefur átt sér stað þrátt fyrir talsverð undirliggjandi gjaldeyriskaup á markaði. Seðlabankinn tilkynnti í vor að hann myndi hefja regluleg gjaldeyriskaup á markaði á ný eftir hlé á slíkum kaupum frá desemberbyrjun í fyrra. Frá 12. maí fram til 11. september námu kaupin 6 m.EUR á viku en þá tvöfaldaði bankinn vikuleg kaup í 12 m.EUR. Þann 25. september voru gjaldeyriskaup Seðlabankans hins vegar mun meiri, eða sem nam 21 m.EUR, jafnvirði 2,9 ma.kr. og var Seðlabankinn aðili að nærri 2/3 millibankaviðskipta þann dag. Hér var um að ræða fyrstu óreglulegu inngrip bankans á gjaldeyrismarkaði frá septemberbyrjun í fyrra. Við teljum líklegt að þessi kaup bankans hafi tengst stökum, stórum viðskiptum sem Seðlabankinn hafi ekki viljað að ýtti krónunni tímabundið í enn frekari styrkingu.

Frá því gjaldeyriskaup Seðlabankans hófust hefur bankinn safnað í sarpinn 153 m.EUR, jafnvirði ríflega 21 ma.kr., til að styrkja gjaldeyrisforða sinn. Bankinn lýsti því yfir í vor þegar hann hóf regluleg gjaldeyriskaup að væri að ljúka þeim um miðjan þennan mánuð. Verður fróðlegt að sjá hvort það gengur eftir.

Auk Seðlabankans hafa íslenskir lífeyrissjóðir verið nokkuð atkvæðamiklir á gjaldeyrismarkaði það sem af er ári. Frá ársbyrjun til ágústloka námu hrein gjaldeyriskaup þeirra samtals jafnvirði tæplega 76 ma.kr. samkvæmt tölum Seðlabankans. Það er þrefalt færri upphæð en á sama tímabili í fyrra og raunar hafa kaup sjóðanna á gjaldeyri ekki verið meiri á fyrstu tveimur þriðjungum árs síðan 2019. Samkvæmt ritinu Fjármálastöðugleika var hlutfall gjaldeyriseigna af heildareignum lífeyrissjóðanna 42% í júlílok. Margir þeirra hafa því enn verulegt svigrúm til frekari kaupa á gjaldeyriseignum þar sem lögbundið hámark slíkra eigna í hverjum sjóði fyrir sig er 54,5% í dag. Fram kom í Fjármálastöðugleika að flestir sjóðanna áformi að auka þessa hlutdeild enn meira.

Viðskiptahalli bítur lítt á krónuna

dAuk gjaldeyriskaupa Seðlabankans og lífeyrissjóða hafa innflytjendur og kaupendur á erlendri þjónustu vitaskuld keypt gjaldeyri á markaði auk þess sem talsverð gjaldeyriskaup hafa verið vegna greiðslu á fjármagnstekjum innanlands til erlendra aðila, launagreiðslna milli landa og peningasendinga svo nokkuð sé nefnt. Þótt vissulega standi á móti gjaldeyristekjur þjóðarbúsins af vörum, þjónustu og erlendum fjármunum í innlendri eigu hefur viðskiptahalli verið umtalsverður. Hvernig má þá vera að krónan hafi verið jafnt stöðug og raun ber vitni, og hvað þá styrkst undanfarna mánuði?

Stöðugleiki krónunnar í verulegum viðskiptahalla síðustu ár á sér nokkrar skýringar. Gjaldeyrisflæði vegna utanríkisviðskipta hefur verið mun hagfelldara en ætla mætti við fyrstu sýn þar sem viðskiptahallinn hefur að miklum hluta verið fjármagnaður beint af erlendum aðilum. Miklum innflutningi fjárfestingarvara hefur raunar fylgt sala á gjaldeyri í nokkrum mæli til kaupa á þjónustu, greiðslu launa og greiðslu opinberra gjalda tengt fjárfestingum. Skýrasta dæmið um þetta er uppbygging í gagnaverageiranum sem sett hefur verulegan svip á fjárfestingu og innflutningstölur undanfarna fjórðunga. Svipað hefur verið uppi á teningnum, þótt í minni mæli sé, í uppbyggingu innviða sem og í fjárfestingu í landeldi.

Háönn ferðaþjónustunnar virðist líka hafa skilað heldur meiri tekjum á hvern ferðamann þótt ferðamannafjöldinn hafi verið nánast óbreyttur milli ára. Þá hafa kaup erlendra aðila á ríkisverðbréfum í sumarlok trúlega haft sitt að segja um styrkinguna undanfarið

Krónan sterk í bili en gefur líklega eftir síðar

Í nýútkominni þjóðhagsspá okkar spáum við í spilin varðandi horfur á gengi krónu. Sem fyrr styður eitt og annað við krónuna á næstunni. Útlit er fyrir minnkandi viðskiptahalla við útlönd, erlend staða þjóðarbúsins er sterk, gjaldeyrisforði Seðlabankans myndarlegur, stoðir hagkerfisins traustar og vaxtamunur við útlönd verður áfram nokkur. Þó gæti gefið á bátinn hvað krónuna varðar ef komandi ferðaþjónustuvetur verður slakur, verulega dregur úr innflæði af erlendu fjármagni til fjárfestinga innanlands eða ef viðskiptakjör rýrna til muna á komandi fjórðungum.

Raungengi krónu verður þó að líkindum áfram hátt í sögulegu samhengi, a.m.k. meðan ekki verður meira bakslag í útflutningsgeiranum en við væntum. Þar sem laun og verðlag hækka hraðar hér en í viðskiptalöndum fer þó ekki hjá því að nafngengi krónu þurfi að gefa eftir á endanum, annað hvort hægt og bítandi eða með stærri leiðréttingu þegar frá líður.

Gengisspá okkar gerir ráð fyrir hægfara veikingu síðar meir fremur en snarpri leiðréttingu. Það felur í sér að krónan veikist jafnt og þétt og verður að jafnaði 4% veikari í lok spátímans en í ágústmánuði 2026. Það samsvarar því að EUR kosti u.þ.b. 148 krónur og USD u.þ.b. 127 kr. miðað við gengi þessara mynta undanfarið. Vart þarf að taka fram að óvissa um gengisspána er veruleg líkt og jafnan gildir um gengi gjaldmiðla.

Höfundur


Jón Bjarki Bentsson

Aðalhagfræðingur


Hafa samband