En hvers vegna halda fyrstu kaupendur betur velli en aðrir? Í fyrsta lagi er þeim veitt sértækt reglusvigrúm: hámarksveðsetningarhlutfall er 90% í stað 80% almennt og greiðslubyrðarmörkin eru 40% í stað 35%. Í öðru lagi voru reglur um hlutdeildarlán rýmkaðar um áramótin og ásókn hefur verið mikil; HMS samþykkti 240 umsóknir á fyrstu átta mánuðum ársins, sem jafngildir tæplega fjórðungi seldra nýbygginga á tímabilinu, samanborið við um 10% á árunum 2021 til 2025. Í þriðja lagi njóta fyrstu kaupendur oftar en ekki stuðnings foreldra eða náinna ættingja við fasteignakaup. Í mánaðarlegum könnunum HMS frá júní 2025 til ágúst 2026 sögðust að meðaltali 79% þeirra fasteignasala sem höfðu miðlað til fyrstu kaupenda hafa séð aðstoð frá fjölskyldu við fjármögnun kaupanna. Þessir þættir auðvelda fyrstu kaupendum að fjármagna kaupin og þar með nýta sér sterkari samningsstöðu á markaðnum.
Jafnframt beina fyrstu kaupendur almennt sjónum sínum að minni íbúðum í fjölbýli. Á fyrri helmingi ársins keyptu þeir að meðaltali um fjórðungi minni íbúðir en aðrir kaupendur í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu, eða um 86 fermetra samanborið við 116 fermetra.
Þessi úrræði, ásamt sterkum hvata hópsins til að flytja að heiman eða komast af leigumarkaði og festa kaup á sinni fyrstu eign, geta átt þátt í að skýra hvers vegna fyrstu kaupendur halda fremur velli á sama tíma og aðrir kaupendur draga sig í hlé.
Grindavík: óvissuþáttur um framboð næstu missera
Fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats, sem kynntar voru 22. september, benda til þess að forsendur varanlegrar búsetu í Grindavík séu ásættanlegar að uppfylltum öryggisskilyrðum. Ríkisstjórnin telur því grundvöll fyrir því að hefja undirbúning að endurkaupum Grindvíkinga á íbúðarhúsnæði í bænum.
Þessi nýlega þróun gæti haft áhrif á framboð íbúða með ýmsum hætti. Flytji Grindvíkingar aftur heim í miklum mæli og selji íbúðir sínar, meðal annars á höfuðborgarsvæðinu og suður með sjó, gæti framboð til sölu aukist þar. Þá gætu eignir Þórkötlu sem ekki verða endurkeyptar síðar farið í sölu eða útleigu. Umfang og tímasetning slíkra áhrifa eru þó enn óljós.
Hvert stefnir markaðurinn?
Í nýrri þjóðhagsspá Greiningar spáum við því að íbúðaverð hækki um 1,8% í ár og 2,8% á næsta ári, sem svarar til um 3,4% og 1,6% lækkunar að raunvirði vegna þrálátrar verðbólgu. Á lokaári spátímans, 2028, spáum við hins vegar 7,5% hækkun eða um 3,8% að raunvirði. Útlit er því fyrir að markaðurinn verði rólegri fram á næsta ár en áður var talið, en að krafturinn verði meiri þegar markaðurinn tekur við sér á ný í kjölfar þess að vaxtalækkanir fara að skila sér í betri kjörum íbúðalána.