Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki innleiðir Google Walletᵀᴹ

Viðskiptavinir Íslandsbanka geta nú tengt greiðslukort sín við Google Wallet appið. Þannig má greiða fyrir vöru og þjónustu með snertilausum hætti með því að nota Google Pay á Android farsímum sínum og snjalltækjum sem styðja Wear OS stýrikerfi.


Innleiðing Google Wallet appsins er hluti af aðgerðum sem gripið hefur verið til í kjölfar skoðunar bankans á hvernig bæta má snertilausar greiðslur með Android farsímum (t.d. Samsung og Nokia) svo þær gangi hnökralaust fyrir sig.

Þetta eru nokkur tímamót því Google Wallet hefur til þessa ekki verið aðgengilegt í Android tækjum á Íslandi. Íslandsbanki leggur sig fram um að mæta kröfum viðskiptavina og tryggja örugg og hnökralaus bankaviðskipti með notkun nýjustu og bestu tækni, hvort sem er með eigin lausnum eða í samvinnu við aðra eins og í þessu tilviki

Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir

Framkvæmdarstjóri Einstaklingssviðs Íslandsbanka

Viðskiptavinir sem tengja kort sín við Google Wallet greiða áfram fyrir vörur sínar með korti útgefnu af Íslandsbanka þegar sími er settur við posa. Google Wallet appið sér eingöngu um samskipti á milli korts og posa til að snertilausar greiðslur gangi betur fyrir sig. Með notkun tækninnar geta viðskiptavinir bankans tileinkað sér enn frekar snertilausa virkni farsíma sinna í stað þess að framvísa kortaplasti.

Nánar um Google Walletᵀᴹ