Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka veitir 70 milljónir til 18 verkefna
Úthlutun úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka hefur aldrei verið hærri. Í ár hljóta átján verkefni styrk og nemur úthlutunin samtals 70 milljónum króna.
Með úthlutuninni í ár hefur Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka veitt tæplega 400 milljónum króna til nýsköpunarverkefna frá stofnun. Alls hafa 1.279 umsóknir borist sjóðnum á þeim tíma. Styrkirnir í ár eru allt að fimm milljónir króna.
Markmið sjóðsins er að efla nýsköpun og styðja frumkvöðla við að þróa hugmyndir sínar og hrinda þeim í framkvæmd. KLAK – Icelandic Startups er þjónustuaðili sjóðsins og annast mat á umsóknum.
Aukin þátttaka frumkvöðla á landsbyggðinni
Hlutfall umsókna frá landsbyggðinni hefur aukist verulega milli ára. Í ár bárust 33% umsókna utan höfuðborgarsvæðisins, samanborið við 22% í fyrra. Umsóknir af höfuðborgarsvæðinu voru 67%.
Blönduð teymi karla og kvenna voru í miklum meirihluta umsækjenda, eða 72%. Teymi eingöngu skipuð körlum voru 22% og teymi eingöngu skipuð konum 6%.
Reynsla úr nýsköpun og fjárfestingum
Stjórn Frumkvöðlasjóðs Íslandsbanka skipa Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Íslandsbanka og stjórnarformaður sjóðsins, Davíð Símonarson, stofnandi og framkvæmdastjóri Smitten og Ragnheiður H. Magnúsdóttir, stofnandi englafjárfestingafélagsins Nordic Ignite.
Íslenskt frumkvöðlastarf stendur sterkt en aðgengi að fjármagni er enn ein helsta áskorun sprotafyrirtækja, sérstaklega á fyrstu stigum. Þar gegnir Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka mikilvægu hlutverki. Með því að styðja við efnilegar hugmyndir á viðkvæmu vaxtarstigi getum við hjálpað frumkvöðlum að stíga næstu skref og skapað grundvöll fyrir frekari vöxt. Reynslan sýnir að jafnvel tiltölulega lítill styrkur getur skipt sköpum.
Una Steinsdóttir
Framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Íslandsbanka og stjórnarformaður Frumkvöðlasjóðs
Verkefnin sem hlutu styrk úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka 2026 eru
Frekari upplýsingar um Frumkvöðlasjóðinn má finna hér: https://www.islandsbanki.is/is/vara/bankinn/frumkvodlasjodur

