Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Frestur til að sækja um stuðningslán rennur út um mánaðamótin

Veiting stuðningslána, til smærri rekstraraðila sem glíma við samdrátt vegna efnahagslegra áhrifa Covid 19, er einungis heimiluð til 31.maí 2021.


Vakin er athygli á að nú styttist í að umsóknarfrestur vegna stuðningslána renni út. Þar sem nokkurn tíma getur tekið að afgreiða umsóknir er rekstraraðilum sem hyggjast sækja um stuðningslán ráðlagt að sækja um tímanlega fyrir lok mánaðar.

Á vef stjórnarráðssins kemur fram: ,,Smærri rekstraraðilum sem glíma við samdrátt vegna heimsfaraldurs kórónuveiru hefur staðið til boða að sækja um stuðningslán með ábyrgð ríkissjóðs. Lánin má veita til 31. maí 2021. Nokkurn tíma getur tekið að afgreiða umsóknir en ekki verða veitt stuðningslán eftir lok þessa mánaðar þótt umsókn hafi borist fyrr. Rekstraraðilum, sem hyggjast sækja um stuðningslán, er því ráðlagt að sækja um tímanlega fyrir 31. maí 2021.”

Nánari upplýsingar um stuðningslán