Úthlutanir úr sjóðnum eru á bilinu ein til fimm milljónir króna.
Styrkir úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka eru veittir einu sinni á ári. Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2025. Hægt er að sækja um hér.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Frumkvöðlasjóð Íslandsbanka, en sjóðurinn styður við nýsköpunarverkefni og hvetur til þróunar um allt land á spennandi hugmyndum og verkefnum.
Frumkvöðlastarf á Íslandi er bæði kraftmikið og fjölbreytt, sem sýnir sig glöggt í vaxandi fjölda umsókna á hverju ári. Íslandsbanki er stoltur að styðja við bakið á þessum framsæknu hugmyndum og þannig vill bankinn vera hreyfiaflið til góðra verka í samfélaginu og stuðla að fyrirtækjum framtíðarinnar.
Una Steinsdóttir
Framkvæmdarstjóri Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka