Meðal þeirra aðgerða sem stjórnvöld hafa ráðist í til að bregðast við efnahagsáhrifum COVID-19 veirunnar er að opna fyrir úttekt séreignarsparnaðar.
Heimildin er á þennan veg:
- Opin öllum óháð aldri
- Hámarksútgreiðsla er 800.000 kr. á mánuði í 15 mánuði = 12 milljónir króna
- Greiddur er skattur af úttektinni
- Úttektin hefur ekki áhrif á greiðslur barnabóta, vaxtabóta og ellilífeyris TR
Þessi tímabundna heimild kemur ekki til af góðu heldur er ætlað að létta undir með þeim sem sjá fram á fjárhagslega erfiðleika vegna ástandsins.
Hvers vegna greiðum við í séreignarsparnað?
Ef við viljum megum við greiða 2-4% af launum okkar í viðbótarlífeyrissparnað (séreignarsparnað) og eigum þá rétt á 2% framlagi frá vinnuveitanda á móti. Þetta er í raun launahækkun og því ættu allir að greiða í séreignarsparnað, þó ekki sé nema til þess að fá þessa viðbótargreiðslu. Auk þess hefur um skeið verið boðið upp á sérstaka ráðstöfun séreignar inn á íbúðalán eða til útborgunar í fyrstu íbúð og er slíkt skattfrjálst.
Séreignarsparnaður er annars að öllu jöfnu bundinn til 60 ára aldurs og þá er úttekt frjáls. Ástæða þess er að ef ekki er sparað með þessum hætti er hætt við að tekjur okkar lækki til muna þegar við hættum að vinna þar sem reglulegar greiðslur úr lífeyrissjóðum eru yfirleitt talsvert lægri en launin okkar voru á vinnumarkaði.
Séreign er með öðrum orðum mikilvægur þáttur þess að hafa það betra þegar við verðum eldri og það hefur ekki breyst, þrátt fyrir þessa tímabundnu heimild til úttektar.