Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Breytingar á debetkortagreiðslum

Breytingin gefur tækifæri til að koma debetkortagreiðslum í nútímalegra horf


Reiknistofa bankanna uppfærir nú grunnkerfi sín og hættir samhliða því að sinna hefðbundinni debetkortavinnslu fyrir Íslandsbanka. Í dag, þriðjudaginn 7.mars, verða því öll einstaklingsdebetkort færð yfir í nýtt kerfi sem halda mun utan um allar upplýsingar tengdar debetkortum. 

Breytingin gefur okkur tækifæri til að koma debetkortagreiðslum í nútímalegra horf. Í stað þess að greiðsla sé tekin strax af reikningi viðskiptavinar mun færslan vera sýnileg sem færsla á bið. Slíkar færslur hafa áhrif á ráðstöfun reiknings en fara í raun ekki af reikningi viðskiptavinar fyrr en posinn er gerður upp af söluaðila. Þessi breyting felur einnig í sér að sama fyrirkomulag er til staðar fyrir bæði debetkort og kreditkort bankans. 

Ef viðskiptavinir einstaklingskorta upplifa erfiðleika við notkun debetkorta í dag er velkomið að hafa samband við bankann í gegnum síma, netspjall eða með heimsókn í útibú.

Nánar um flutning debetkorta