Tíu myndir: Spjall um erlenda markaði og gervigreindarkapphlaupið

Hvernig er staðan á erlendum mörkuðum og hvaðan koma peningarnir sem knýja gervigreindarkapphlaupið?

Á fundinum „Tíu myndir“ beinum við sjónum að erlendum mörkuðum og gervigreindarkapphlaupinu og fáum til okkar góðan gest frá Vanguard, einu stærsta eignastýringarfyrirtæki heims. Gríðarlegir fjármunir streyma nú í gervigreind, gagnaver og örgjörva. Hver borgar fyrir þetta allt saman? Af hverju eru svona mörg félög á leið á markað núna? Hvað þýðir það fyrir þig sem fjárfesti? Tíu myndum verður varpað upp sem draga fram kjarna málsins og varpa ljósi á stöðuna.

Umræðum stýra Birkir og Leifur úr Chess After Dark. Í settið mæta:

Mark Fitzgerald, fjárfestingastjóri Vanguard í Evrópu. Mark ber ábyrgð á þróun fjárfestingavara fyrirtækisins með sérstaka áherslu á kauphallarsjóði (ETF). Það eru sjóðir sem fylgja ákveðinni vísitölu og ganga kaupum og sölum í kauphöll eins og hlutabréf. Hann fer yfir stöðuna á erlendum mörkuðum og hvað einkennir fjárfestingaumhverfið í dag. Hann ræðir líka hvaða kostir eru í boði í sjóðum og hvað gott er að hafa í huga þegar þú velur leið til að fjárfesta.

Valþór Druzin Halldórsson, forstöðumaður gagnaþjónustu og gervigreindar hjá Íslandsbanka. Valþór rýnir í peningana á bak við gervigreindarkapphlaupið og fer yfir hverjir fjármagna það, hvernig og með hvaða áhættu. Hann skoðar líka hvaða áhrif þetta hefur á markaðina.

Húsið opnar kl. 17.30 og fundurinn hefst kl. 18. Áætlað er að hann standi í rúman klukkutíma.

Fundurinn er opinn öllum og fer fram í Flauelssalnum í Smárabíói mánudaginn 9. nóvember. Boðið verður upp á borgara frá Búllunni.

Sætafjöldi er takmarkaður, svo tryggðu þér sæti með því að skrá þig hér fyrir neðan.

Viðburður

18:00 - 20:00

Smárabíó