
Tíu myndir: Spjall um efnahagsmál og skuldabréf
Hér munu Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur í Greiningu Íslandsbanka, Ingólfur Snorri Kristjánsson, forstöðumaður skuldabréfa hjá Íslandssjóðum og Agnar Tómas Möller, stjórnarmaður í Íslandsbanka, kafa á dýptina um efnahagsmál og skuldabréf frá ólíkum sjónarhornum. Guðný Halldórsdóttir, fræðslustjóri Íslandsbanka, mun stýra umræðum.
Farið verður vítt yfir sviðið og tíu myndum varpað upp sem sýna stöðuna í hagkerfinu hér heima og erlendis – allt frá komandi vaxtaákvörðun til skuldahlutfalla í Evrópu.
Húsið opnar klukkan 17 og er áætlað að fundurinn hefjist um klukkan 17:30 og standi í rúman klukkutíma.
Fundurinn er opinn öllum og fer fram í Fantasíu á Kjarval, 2. hæð í Austurstræti 10, 101 Reykjavík. Boðið verður upp á léttar veitingar.