
Tíu myndir: Spjall um efnahagsmál
Á fundinum „10 myndir“ verður farið yfir það helsta úr nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka. Fjallað verður um verðbólgu- og vaxtahorfur, stöðu vinnumarkaðar, þróunina við Persaflóa og áhrifin hingað heim ásamt mörgu öðru.
Mikil óvissa ríkir nú, meðal annars vegna stöðunnar við Persaflóa og mögulegrar endurskoðunar kjarasamninga í haust svo nokkuð sé nefnt. Tíu myndum verður varpað upp sem draga fram kjarna málsins og varpa ljósi á stöðuna.
Í spjallinu verða Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka, Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur Íslandsbanka, Brynjólfur Stefánsson forstöðumaður sérhæðra fjárfestinga hjá Íslandssjóðum og Heiðar Guðjónsson stjórnarformaður Íslandsbanka. Umræðum stýrir Vignir Þór Sverrisson, fjárfestingastjóri hjá Íslandssjóðum.
Húsið opnar klukkan 17 og er áætlað að fundurinn hefjist um klukkan 17:30 og standi í rúman klukkutíma.
Fundurinn er opinn öllum og fer fram í Fantasíu á Kjarval, 2. hæð í Austurstræti 10, 101 Reykjavík. Boðið verður upp á léttar veitingar.