
Tæknikaffi
Við þökkum fyrir frábærar móttökur – viðburðurinn er nú fullbókaður.
Tækninni fleygir fram og stundum er gott að fá smá aðstoð. Fimmtudaginn 28. maí kl. 16:30 bjóðum við í Tæknikaffi þar sem við veitum handleiðslu í notkun Íslandsbankaappsins.
Við aðstoðum meðal annars við uppsetningu og innskráningu í appið og netbankann. Við sýnum einnig hvernig hægt er að nýta tækin/tæknina til að sinna bankaviðskiptum á borð við millifærslur, greiðslu reikninga og fá yfirsýn yfir kortaviðskipti.
Komdu með símann þinn eða spjaldtölvuna og fáðu persónulega aðstoð í notalegu umhverfi. Við hittumst í Dalnum á þriðju hæð í Norðurturni þar sem boðið verður upp á kaffi, vöfflur og gott spjall.