
Tæknikaffi
ATH! Fullt er á viðburðinn. Við þökkum frábærar viðtökur. Næsta Tæknikaffi verður í ágúst, nánari dagsetning verður auglýst síðar.
---
Mánudaginn 29. júní kl. 16:30 bjóðum við í Tæknikaffi þar sem við veitum handleiðslu í notkun Íslandsbankaappsins.
Í tæknikaffinu kynnum við nýja möguleika í appinu og netbankanum, svörum spurningum og bjóðum upp á persónulega leiðsögn fyrir þau sem vilja fá sem mest út úr stafrænum lausnum bankans.
Komdu með símann þinn eða spjaldtölvuna og fáðu persónulega aðstoð í notalegu umhverfi. Við hittumst í Dalnum á þriðju hæð í Norðurturni þar sem boðið verður upp á kaffi, vöfflur og gott spjall.