Strákurinn sem týndi jólunum

Strákurinn sem týndi jólunum er lítið og fallegt ferðalag um óþekkan ungan strák sem týnt hefur jólagleðinni. Á ferðalagi sínu lendir hann í ýmsum skemmtilegum og spennandi ævintýrum. Hann kynnist meðal annars góðhjörtuðum jólaálfi og Grýlu gömlu sem hefur beðið í mörg ár eftir því að fá óþekkan strák í jólasúpuna sína.

Viðburðurinn er haldinn í útibúi Íslandsbanka í Norðurturni (Hagasmára 3 við Smáralind) og hentar sýningin sérstaklega krökkum á aldrinum 4ja til 12 ára.

Frítt er inn á viðburðinn og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Athugið að engin bankaþjónusta verður í útibúinu sjálfu.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Krakkabankinn er viðburðaröð Íslandsbanka sem er ætlað að höfða til yngstu kynslóðarinnar og vera blanda af skemmtun og fræðslu.

Viðburður

13:00 - 14:00

Útibúið í Norðurturni hjá Smáralind