Tónleikar með Pollapönki!

Pollapönk mætir í Krakkabankann og tekur skemmtileg lög sem krakkar á öllum aldri ættu að hafa gaman af.


Tónleikarnir eru haldnir í útibúi bankans í Norðurturni (Hagasmára 3 í Kópavogi). Frítt er inn á viðburðinn og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Boðið verður upp á léttar veitingar.


Athugið að engin bankaþjónusta verður í útibúinu sjálfu.


Krakkabankinn er viðburðaröð Íslandsbanka sem er ætlað að höfða til yngstu kynslóðarinnar og vera blanda af skemmtun og fræðslu.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Viðburður

13:00 - 14:00

Útibúið í Norðurturni hjá Smáralind